28.12.07

Áramótakveðja M4. 2007



Hér er árleg Áramótakveðja mín til ykkar kæru Móar (aðrir dyggir lesendur mega taka þetta til sín líka) með kæru þakklæti fyrir árið sem er að líða.
Eins og sést í þessu myndbandi þurfum við að vera talsvert duglegri við að hittast, þar sem einu myndirnar sem ég fann voru frá Meistaramótinu okkar á Hellu.

Það er auðvitað alveg ljóst að árið 2008 mun toppa árið sem er að líða enda er nú þegar ákveðið að skella sér erlendis í golf seinni part sumars, svo er bara að spinna eitthvað skemmtilegt í viðbót : )

Takk fyrir mig.

27.12.07

Byr er aðal !

Já gjafmildi þeirra hjá Byr er stórkostleg, ég sá í Fréttablaðinu í dag að dagskrá Stöðvar 2 verður í opinni dagskrá á nýársdag í boði Byrs.
Flott hjá þeim en hvað ætli dyggum áskrifendum stöðvarinnar finnist um þetta, borga rándýrt mánaðargjald og svo er bara "nýársdýrðin" í opinni !
Svo fór ég að skoða hvað verður í boði og komst að því að yfir allan daginn er eingöngu um endursýningar að ræða, fyrir utan þrjár bíómyndir kvöldsins !

Jú, endursýningar eru frumsýningar fyrir þá sem eru ekki áskrifendur stöðvarinnar en gjöfin er bara ekki eins flott þegar dagskráin er skoðuð.

Af þessum myndum sem eru á nýárskvöld á ég bara eftir að sjá myndina Ray, en hún er eftir miðnætti þannig að ef ég þekki 365 rétt þá verður búið að loka þegar hún byrjar, og hinar tvær myndirnar eru bara ekkert spes.

Takk fyrir mig Byr, thanks for nothing : )

Bíó: Keeping Mum (2005)

Ágætis afþreying, ekkert meira en það.
Einkunn 6/10

Vond jólalög.

Nú þegar jólin eru "búin" er þá ekki við hæfi að setja hér saman lista yfir mest óþolandi íslensku jólalögin ?

Þessi lög eru alveg óþolandi en ekkert endilega í þessari röð:

1. Svona eru jólin - Eyjólfur Kristjánson (aðfangadagur eeeer tími jólagjafa.....)
2. Hvít Jól - Ellý Vilhjálms og Vilhjálmur V. (kaflin þar sem þau syngja úr synci er óþólandi plús það að klúðra þessu lagi er bara til skammar)
3. Jólahjól - Sniglabandið (vá hvað ég fékk nóg af þessu lagi fyrir mörgum árum síðan)
4. Svona gerum við - Haukur Morthens (6 mín af "svona gerum við" endurtekið aftur og aftur)
5. Jólarokk - Anna Mjöll Ólafsdóttir (get reyndar talið upp öll lög með Önnu og sett á listann)
6. Morning Has Broken - Stefán Hilmarsson (man ekki hvað lagið heitir en þetta er til skammar)
7. Þú komst með jólin til mín - Björgvin og Rut (þetta er bara svo leiðinlegt lag)
8. Þú og ég og jólin - Svala og Björgvin (held að lagið heiti þetta, ömurlegt lag, ömurlegur "söngur")
9. Jólakötturinn - Björk Guðmundsdóttir (fínn flutningur, það vantar ekki, en mér finnst þetta jólalag bara svo leiðinlega þjóðlegt)
10. Litli Trommuleikarinn - Allir sem flutt hafa (Lagið er bara svo leiðinlegt, sorrý)

Jahá, þetta eru 10 leiðinleg jóla lög að mínu mati.
það er örugglega ekkert mál að finna 100 leiðinleg jólalög en því nenni ég ekki og hef heldur ekki minni til.

22.12.07

Jólafrí

Loksins loksins er ég kominn í jólafrí !
Það vantar svo sem ekki að þessir dagar sem eftir eru til jóla eru þétt skipaðir verkefnum, en eingöngu skemmtilegum verkefnum samt.
Á morgun förum við fjölskyldan í mikinn bíltúr þar sem viðkomustaðirnir verða líklega fjórir, tveir í bænum svo Hveragerði og svo loks í sveitina til mömmu og pabba.

Bara gaman.

19.12.07

Mbl.is aftur

Það er alltaf gaman að skoða mbl.is, ég finn þar mjög oft eitthvað sem vekur furðu mína.
Núna rakst ég á þetta, en hér er sagt frá þeim bíómyndum sem mesta aðsókn fengu í BNA um helgina.
Gott og blessað, mbl gerir þetta í hverri viku og er það hið besta mál, mér t.d. finnst þetta áhugavert en það sem vaki athygli mína er að þeir hafa haft fyrir því að setja íslenskan titil á sumar myndirnar en aðrar ekki.
Myndin í 9. sæti heitir Atonement en er kölluð Friðþæging á mbl, ekki efast ég um að þýðingin er rétt en til að hafa jafnvægi á hlutunum hefði verið gaman að fá íslenskan titil á allar myndirnar.
Ég skal taka það að mér.

1. Ég er þjóðsaga (I Am Legend)
2. Alvin og Pokarotturnar (Alvin and the Chipmunks)
3. Gullni áttavitinn (The Golden Compass)
4. Heilluð (Enchanted)
5. Ekki þjóð fyrir ellibelgi (No Country for Old Men)
6. Fullkomið jólafrí (The Perfect Holiday)
7. Freddi Sveinn (Fred Claus)
8. Þessi jól (This Christmas)
9. Friðþæging (Atonement)
10. Ágúst æði (August Rush)

Og þannig er nú það, þetta er svolítið svona Rúv : )

18.12.07

Radiohead Creep Acoustic Flash

Og ég sem hélt að þetta lag, þessi útgáfa af því gæti ekki orðið meira töff !

Kirkjan auglýsir

Mikið svakalega finnst mér yndislegt að finna friðinn sem yfir mig leggst þegar þögnin kemur í útvarpinu í miðjum auglýsingatímanum, svo kemur yndisleg kvenmannsrödd sem segir mér að þessi kyrrðarstund hafi verið í boði kirkjunnar minnar og svo heyrast kirkjuklukkur kringja......ahhhhhhh.....unaðslegt.

Gott að fá svona áminningu um að kirkjan mín vill mér bara vel.

17.12.07

Bissí

Undanfarna daga hefur verið mikið að gera hjá mér, alltaf brjálað í vinnunni en svo hefur verið óvenjulega mikið að gerast á þessum fáu klukkutímum sem ég hef haft í frí.
Ég var að vinna á laugardag frá kl 05:45 til kl 17:15 og þá smellti maður sé heim og riggaði upp steiktu lambalæri í kvöldmatinn enda var von á gestum í mat, heppnaðist prýðis vel þó sjálfur segi : )
Eftir góðan svefn á sunnudagsmorgun þá tók við jólahlaðborð á Hótel Loftleiðum í boði tengdó og sveik það ekki frekar en vanalega, alger veisla.

Nú svo seinnipartinn var farið á jólatónleika í Fríkrikjunni í Hafnarfirði.
Tónleikarnir voru klukkutíma langir og voru stórskemmtilegir, það voru t.d. tekinn tvö jólalög frá Baggalúti, lögin Sagan af Jesúsi og Annar í jólum.
Frábærir tónleikar þar sem engin var helgislepjan, bara gaman, öruggt að við förum aftur að ári.

Nú svo er það bara vinnan aftur, þó á ég nú von á að það fari að hægja verulega á með hverjum degi sem líður þar sem útlendingarnir sem halda þessu gangandi eru farnir að týnast heim í jólafrí.

En mikið hlakka ég orðið til jóla, samt aðallega bara að vera í fríi og vera með fjölskyldunni.

15.12.07

Pæling.

Ef að karlmaður segir skoðun sína upphátt úti í skógi og það heyrir engin kona til hans, hefur hann þá samt rangt fyrir sér ?

14.12.07

Óbragð í munni

Nú eru c.a. 5 vikur í ferðalag til hinns stórkostlega kanaveldis, önnur ferð okkar skötuhjúa á tæpu ári.
Þegar fréttir bárust núna í vikunni af meðferðinni sem Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl fékk þar í landi þá verð ég að játa að hneykslan mín á hinum geðbilaða kana varð fullkomnuð, það er ekkert normalt við svona meðferð og satt best að segja þá fékk ég óbragð í munninn þegar ég fattaði að ég er að fara að heimsækja þetta fyrrum dýrðarland með litlu fjölskylduna mína.
Auðvitað á bara að hundsa þessa þjóð, þó svo að þeir myndu auðvitað aldrei verða varir við það þá er það bara einhverveginn rétt.

En það er ekki aftur snúið með þessa ferð þannig að sólin á Florida og golfið er það sem koma skal : )

13.12.07

Rufus Wainwright - Going to a town (official)

Rufus verður með tónleika í Háskólabíói þann 13. apríl næstkomandi.

Ætla ég að fara ?
Sjáum til.

12.12.07

Bíó: Disaster! (2005)


Ég fann bara þetta Rússneska plakat : )

Þessi mynd er afar skrítin, einhverskonar "B" útgáfa af myndinni Team America sem þeir Southpark bæður gerðu.
Þessi mynd er ef eitthvað subbulegri en Team America en langt því frá eins góð.
Söguþráðurinn er einhverskonar blanda af söguþræði myndanna Appolo 13 og Armageddon.
Mikið um prump og ræpu og kynlíf, bara ekki sett eins fyndið fram og í títt nefndri Team America.

Einkunn 6/10

11.12.07

Bíó: Simon Says (2006)

Hryllingsmynd.
Ég horfði á þessa mynd fyrir nokkrum vikum og ég man ekki um hvað hún fjallaði, held reyndar að ég hafi ekki klárað hana : )
Rusl.

Einkun: 2/10 fyrir blóðug subbuatriði.

6.12.07

Ég skal !

Nú er farið að halla heldur betur á þúsund heimsóknir á þetta blogg !
Skildi það hafast fyrir jól ?
Allavega fyrir áramót fjandinn hafi það !

5.12.07

Ja hvur....................

Manni detta ýmsir frasar í hug :

You've got balls !
Wanna see my nuts ?
Grande cahones !!

Hvað dettur þér í hug ?

http://kvikmynd.is/video.asp?land=topplisti&offset=18&ba=topplistar&id=4761

4.12.07

Faðerni ?

Nú undanfarið hafa allskonar "tegundir" af faðernismálum verið í fjölmiðlum, bæði íslensk og erlend.
Stæðsta og að mínu mati sorglegasta málið er mál Lúðvíks Gizurarsonar en hann hefur lengi reynt að fá það sannað að hann sé sonur Hermanns Jónassonar fyrrverandi forsætisráðherra. Þetta reyndist honum mjög erfitt þar sem hann var bæði að berjast við mikils virta menn í þjóðfélaginu og svo var meintur faðir löngu látinn.
Þetta hafðist þó hjá Lúðvík þó svo að nýfengin systkin hans hafi ekki tekið honum fagnandi við tíðindin, og kannski ekki nema von þó eflaust hefði mátt tækla gjörninginn betur.
Erlendis hafa allskonar mál verið í fréttum t.d. eftir að Anna Nicole Smith dó upphófst mikill farsi um hver væri faðir nokkura mánaða gamallar dóttur hennar og erfingja af miklum auðæfum.
Í gær voru sagðar fréttir af því að stúlkur tvær sem höfðu endað hjá röngum foreldrum á fæðingardeildinni í Tékklandi væru nú komnar til réttra foreldra eftir tæpt ár hjá röngum foreldrum, hlítur að vera rosalega erfitt mál fyrir alla viðkomandi.

Og svo er núna í fréttum mál sem mér finnst reyndar meira fyndið þó að það sé vissulega sorglegt á margan hátt líka en þar segir frá hinni tvítugu Mandy frá Merseburg í Þýskalandi sem á í nokkuð óvenjulegu barnsfaðernismáli. Átta karlmenn hafa verið kvaddir til dóms til að fá úr því skorið hver er faðir hinnar sextán mánaða gömlu Joy, sem er augasteinn móður sinnar.

Mandy frá Merseburg er dansari á nektarstað í bænum. Eitt kvöldið tókst henni svo vel til að karlmenn á staðnum vildu óðir kynlíf með dansmeyjunni. Mandy var að sjálfsögðu til í tuskið enda á staðnum til að gleðja gaurana og svo fæddist Joy.

"Mér finnst best að dóttir mín fái líka að vita hver faðir hennar er, svo hún geti kynnst honum," segir Mandy.

Já þar fer sómakær stúlka sem vill barni sínu bara það besta.

30.11.07

Midnight Oil - Beds are Burning

Nú er nýlokið þingkosningum í Ástralíu.
Venjulega gæti mér ekki verið meira sama en nú fékk ég áhuga, því að Peter Garrett, fyrrverandi söngvari rokkhljómsveitarinnar Midnight Oil, verður umhverfisráðherra. Garrett stofnaði hljómsveitna árið 1973, en leysti hana upp fyrir fimm árum og sneri sér að stjórnmálum.

Midnight Oil varð heimsfræg á 9. áratugnum með laginu Beds Are Burning sem fjallaði um bága stöðu frumbyggja í Ástralíu. Hljómsveitin fjallaði mikið um umhverfismál í textum sínum. Peter Garrett var kjörinn á þing fyrir Verkamannaflokkinn í kosningunum 2004. Flokkurinn fór með sigur af hólmi í þingkosningunum í Ástralíu á dögunum.

Þetta eru góðar fréttir.

28.11.07

Kolla klikkar ekki !

Spurt á þingi: Af hverju eru nýfæddir strákar í bláu og stelpur í bleiku?

Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður VG, hefur beint fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um hvernig sú hefð hefur mótast á fæðingardeildum opinberra sjúkrastofnana “að nýfædd stúlkubörn eru klædd í bleikt en drengir í blátt og þeir auðkenndir með bláum armböndum og stúlkur með bleikum.”

Jafnframt spyr Kolbrún hvort ráðherra vilji breyta hefðinni þannig “að nýfædd börn verði ekki aðgreind eftir kyni með bleikum og bláum armböndum og að þau verði framvegis klædd í hvítt eða aðra kynhlutlausari liti.”

Væntanlega fara fram umræður í þinginu um þessa fyrirspurn Kolbrúnar eftir um það bil viku.


Þetta tók ég af eyjan.is.

Ég velti fyrir mér, hefur Kolbrún ekkert þarfara að gera ?
Ég þekki menn sem kusu Vinstri Græna í síðast : )

27.11.07

INNBROT !

Í morgun þegar ég ætlaði að leggja af stað til vinnu sá ég að vinnubíllinn minn var opinn og greinilegt var að það hafði öllu verið rótað út út hanskahólfinu í leit að einhverju eigulegu.
En þjófurinn fann ekkert sem höfðaði til hans nema þrjá óopnanaða poka af Extra tyggjói, kauði kaus að láta vera eðal kasettur sem ég hafði útbúið fyrir c.a. 20 árum með allskonar eðalefni þess tíma og svo var þarna líka kasetta með bestu lögum The Eagles sem fíflið hafði ekki áhuga á, fáviti.
Nokkuð vel sloppið verð ég að segja, engar skemmdir, Eagles kasettan á sínum stað og nú þarf ég bara að kaupa meira tyggjó og þá er allt í gúddí.

Núna ráfar sem sagt um göturnar einstaklingur sem státar af ferskum andardrætti og lélegum tónlistarsmekk : )

26.11.07

Bíó: Mýrin (2006)


Það þarf ekkert að segja um hvað myndin fjallar, það vita allir.
Það sem ég vil hinns vegar segja er þetta:
Mýrin er mjög góð mynd, ég var ekki búinn að lesa bókina þannig að ég vissi ekkert um söguþráðinn og eflaust hefur það hjálpað til.
Persónulega finnst mér myndin Köld Slóð betri, ekkert mikið betri, samt betri, plottið betra og líklega er það bara málið, það sem Mýrin hefur fram yfir Kalda Slóð er peningar sem skila sér í stórfenglegum myndaskotum úr lofti meðal annars og er allt yfirbragð myndarinnar bara flottara (dýrara).

Mýrin er samt fínasta mynd sem þú skalt sjá ef að þú ert einn af þessum 14 sem eru ekki búnir að sjá hana.

Einkunn: 8/10

Bíó: Köld slóð (2006)

Fyrir utan svolítið stirðan leik fyrstu mínúturnar er þessi mynd einfaldlega þræl góð.
Gott plott, mikið betra en maður þorði að vona í íslenskri mynd og góður leikur, verð ég sérstaklega að nefna Hjalta Rögnvaldsson sem sannar í þessari mynd að hann átti að leika Erlend í Mýrinni.

Einkunn: 8/10

22.11.07

Gaman á mbl.is

Í dag er fullt af skemmtilegum fréttum á mbl.is.
Dæmi:
1. Yvonne Buschbaum frá Þýskalandi hefur á undanförnum árum margoft verið keppinautur Þóreyjar Eddu Elísdóttur á stórmótum í stangarstökki. Þær mætast ekki aftur því Buschbaum hefur ákveðið að hætta keppni og gerast karlmaður.

2. Lögregla í Arizonaríki í Bandaríkjunum leita nú manns, sem grunaður er um að hafa nauðgað hundi af tegundinni Jack Russell Terrier og einnig misþyrmt honum með öðrum hætti.

3. Maður á fimmtugsaldri var í gærkvöldi handtekinn í austurhluta Reykjavíkur fyrir þann óvenjulega glæp að hafa stundað símaónæði. Hann mun hafa stundað þetta af og til í marga mánuði en í gær hringdi hann yfir hundrað símtöl í neyðarlínuna og truflaði starfsfólk og teppti símalínur. Að sögn lögreglunnar var maðurinn ölvaður. Símtölin voru rakin heim til mannsins sem mætti lögreglu fyrir utan heimili sitt með óhljóðum og látum.

4. Popparinn Boy George kemur fyrir rétt í London í dag þar sem hann er sakaður um að hafa haldið 28 ára karlmanni föngnum gegn vilja hans með því að hlekkja hann við vegg. Mun Boy George sem er 47 ára og heitir í raun George O’Dowd hafa keypt blíðu þessa manns sem stundar vændi.

Allt á þetta fólk sameiginlegt að eiga í einhverskonar erfiðleikum með sjálft sig og eru greinilega að fá einhverskonar útrás fyrir krankleikann sem svo er sagt frá á mbl.
Gaman að því.

17.11.07

Óhugguleg þróun

Mér finnst svakalegt ástand sem virðist vera komið á skemmtistöðum landsins vegna veru erlends vinnuafls á landinu.
Fyrir viku síðan kom í fréttum að skemmtistaður á Akureyri er búinn að loka fyrir Pólverja á staðnum vegna þess að þeir eru dónalegir og agressívir við íslensku konurnar á staðnum, má líka minna á að það er búið að markaðsetja skipulega íslenskar konur sem léttúðugar dræsur !
Furðulegasta mál allt saman, íslenskir karlmenn hafa einmitt verið annálaðir heiðursmenn með víni og hafa alltaf kunnað að koma fram við konurnar af sjéntilmennsku.
Fordómar.......auðvitað ekki, Pólverjar eru bara annars flokks menn með svitalykt og táfýlu.

Og núna er einmitt nákvæmlega það sama að gerast í Reykjavík, Klúbburinn á Stórhöfða hefur nú líka lokað á Pólverja og líka Letta !
Ástæðan, samkvæmt Guðjóni staðarhaldara Klúbbsins koma upp deilur manna á milli sem iðulega snúast um kvenfólk. „Íslensku konurnar koma til íslensku karlmannanna og kvarta undan ágengum útlending og þá er fjandinn laus" segir Guðjón, en hann hefur fjölgað starfsmönnum á vakt um helming vegna tíðra árekstra milli Íslendinga og erlendra verkamanna.

Jahá, og lausnin á þessu er auðvitað að loka bara á gröðu útlendingana svo að íslensku karlmennirnir geti einir dónast í stelpunum enda eru þær vanar svoleiðis ruddaskap.
En ætli það sé líka lokað á Pólskar og Lettneskar stelpur ?

Svo að lokum þá vil ég bæta við að Ari Schröder, barþjónn á Café Amsterdam við Hafnarstræti, kannast við ástandið en segir engin alvarleg mál hafa þó komið upp. Hann segir að í mörgum tilfellum sé betra að eiga við erlendu verkamennina heldur en landa sína.


„Ef maður byrstir sig við þá átta þeir sig á að þeir séu á þunnum ís, þótt þeir skilji kannski ekki hvað maður er að segja enda tala þeir oft og tíðum litla sem enga ensku," segir Ari. „Þeir koma frá öguðum löndum og skilja þegar maður er ákveðinn við þá, á meðan Íslendingurinn rífur bara kjaft á móti."

Ari hittir þarna á naglann finnst mér, ég held nefnilega að vandamálið sé ekki þessir útlendingar heldur er hérna eldgömul saga á ferðinni.
Þetta sama var í gangi í "ástandinu" þegar hermenn í úniformi áttu hug íslenskra kvenna fram yfir þessa óþróskuðu karla sem þær höfðu umgengist áður, og svo má líka minna á hvað gerist í bænum þegar erlendir sjóliðar fá helgarfrí í höfnum landsins.

Lausnin er í sjónmáli, nú eru hæst settu menn landsins byrjaðir að tala niður hagsveifluna og ættu merki þess að koma í ljós fljótlega með minnkandi vinnu og þar af leiðandi mun fækka Pólverjum og Lettum og öðrum óvelkomnum verkamönnum á landinu.

16.11.07

Brúðkaup ársins ?

Já það er mikið fjallað um svokallað brúðkaup ársins í fjölmiðlum þessa dagana og er þar rætt um brúðkaup þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Ingibjargar Pálmadóttur.
Samkvæmt fréttum ku þarna verða fjárhagslegur samruni uppá 135 milljarða !
Jón er metinn á 105 milljarða en hún á "bara" 30 milljarða !

Ætli þau geri með sér kaupmála ?

Innilega til hamingju bæði tvö.

13.11.07

Fóstbræður - Afi kemur í heimsókn

Þetta er tímalaus snilld, svo tímalaus reyndar að ég missti af flugi frá Kaupmannahöfn til Íslands vegna of áhorfs á m.a. þetta atriði : )
Hverrar krónu virði !

8.11.07

Bíó: Mr. Brooks (2007)

Leikstjóri: Bruce A. Evans
Aðalhlutverk: Kevin Costner, Demi Moore, William Hurt, Marg Helgenberger.

Það sem fældi mig við þessa mynd er sú staðreynd að í aðalhlutverkum er fólk sem hefur ekki hitt á rétta nótu í hlurverkum sínum í langan tíma þrátt fyrir að vera allt saman fyrrverandi þungavigtar fólk í leikarastéttinni fyrir 10-20 árum síðan.

Gleymið því, hér er á ferðinni alveg fínasta mynd sem kemur svo sannarlega á óvart.

Einkunn 8/10

7.11.07

Liverpool 8- 0 Besiktas í Meistaradeildinni

Stundum er gaman að vera púllari : )
Aldrei leiðinlegt og alltaf spennandi :

6.11.07

Töllan biluð !

Þar sem töllan mín er biluð mun póstum fækka í nokkra daga til nokkra mánuði, allt eftir því hvernig gengur að fá hana viðgerða (og miðað við svörin sem verkstæðið er að gefa mér vinna þar eingöngu fávitar) þannig að ég ætla ekki að halda niðri í mér andanum á meðan ég bíð.
Sættið ykkur bara við þetta strax, það er sársaukaminnst.

4.11.07

Eru rjúpnaskyttur greindarskertar ?

Þetta hlýtur bara að vera rannsóknarverkefni fyrir vísindamenn.
Ég hef reyndar lengi haldið því fram að byssu eign og áhugi á slíkum tólum beri vitni um greindartregðu (með örfáum undantekningum) því það er ekki einleikið hversu fljótir þessir aular eru að koma sér í vandræði, nánast mínútum eftir að rjúpnaveiði tímabilið er hafið eru þessir aular búnir að festa bílana sína uppá heiðum og eru björgunarsveitirnar búnar að vera á fullu síðust tvo daga að redda þessum bjálfum.

Fávitar.

3.11.07

Pirraður !

Í dag er laugardagur og þegar þetta er skrifað er klukkan rúmlega 7 að morgni.
Ég var mættur í vinnu kl 05:45 og verð að vinna til ca. 17 eða 18 í dag.
Það er svo sem ekkert óvenjulegt við það en samt að mínu mati óásættanlegt fyrir föður tveggja ungra barna að vera alltaf í vinnuni því ég þarf nefnilega að vinna líka á morgun !
Já ég mun mæta til vinnu kl 05:45 á sunnudagsmorgni og verða eitthvað fram á daginn, í það minnsta fram að hádegi, og yfir þessu er ég vægast sagt ekki ánægður.
Ástæða þess að helgin fór svona er vegna þess að viss hópur hér innan fyrirtækisins hefur í langan tíma ekki unnið vinnuna sína sem skyldi og hafa þess vegna mistök lekið út frá okkur sem ég og mínir menn þurfum svo að vera fjarri fjölskyldum okkar alla helgina til að redda.
Ég ætla ekki að leyfa mér að sjá fyrir mér hvernig helginni verður eytt af hálfu þeirra sem raunverulega klúðruðu málunum.....helgarferð í bústað, Heiðmörk, nú eða bara kósý tími með fjölskyldunni.
Hvað um það, það er á mínum vinnustað eins og líklega mörgum öðrum þannig að ábyrgð(jafnvel bara skammir) er eitthvað sem þekkist varla nema hjá þeim lægst settu og þá oftast þannig að þeir þurfa eins og í þessu tilfelli að vinna aukavinnu vegna mistaka annara, og sem millistjórnandi fylgi ég með í pakkanum. Og það sorglega við þetta allt er að ég veit að þetta atvik mun ekki breyta neinu hér um, þessi litli hópur fólks hjá mínu fyrirtæki mun eftir sem áður halda áfram að vinna vinnuna sína með hálfum huga í öryggi þess að langflest mistaka þeirra mun aldrei komast alla leið vegna þess að það eru hugsandi menn sem munu oftast sjá klúðrið áður en það nær alla leið.
Djöfull er ég orðinn leiður á þessu !
Enn einu sinni sé ég fyrir endann á veru minni hjá þessu vanþakkláta og ómanneskjulega fyrirtæki og er reyndar furðu hissa á að ég skuli ekki vera löngu búinn að fara héðan.
En núna verður breyting á, ég nefnilega veit loksins hvað mig langar að gera og ætla að láta verða af því : ) þó svo að að verði ekki fyrr en eftir 6 mánuði til ár, þá sé ég það gerast og ekkert fær því breytt !

1.11.07

Bíó: Knocked Up (2007)

Barasta þræl skemmtileg mynd.

Einkunn: 7/10

Smá gáta.

Hver er munurinn á G-blettinum og golfbolta?

Menn eru tilbúnir að verja klukkutíma í að leita að golfboltanum!

30.10.07

Íþróttir í 24 Stundum

Persónulega finnst mér skemmtilegra að lesa 24 Stundir en Fréttablaðið, veit ekki af hverju, það líklega hentar mér bara betur til lestrar.
En einu hef ég tekið eftir á íþróttasíðunni í 24 Stundum sem mér finnst sérstakt, það er mjög persónuleg og jafnvel rætin umfjöllun um íþróttamenn og konur og jafnvel heilu félagsliðin.
Í blaðinu í dag er t.d. þessi grein um Gareth Southgate knattspyrnustjóra Middlesborough :
" hinn vanhæfi stjóri Middlesborough, Gareth Southgate gæti fengið sparkið á næstu dögum en forsvarsmenn liðsins eru loksins búnir að átta sig á að þar fer hæfileikalítill maður í bransanum og því kannski kjörinn eftirmaður Steve McClaren sem hafði enn minni hæfileika á sínum tíma"

Fimmtudaginn 25 okt var þessi grein á íþróttasíðunni:
"Hinn feitlagni, hrokafulli og leiðinlegi kylfingur Colin Montgomerie er í vondum málum"

Ég veit það ekki, það má auðvitað hlæja að þessu bulli en mér finnst þetta frekar kjánalegt.

28.10.07

Baggalútur klikkar ekki.

Í umræðunni um endurútgáfu barnabókarinnar 10 Litlir Negrastrákar hafa Baggalútsmenn tekið sig til og hnoðað saman vísum um 10 Káta Kynvillinga.

Alger snilld.

27.10.07

Bekkjarmót í kvöld.

Í kvöld fer ég á bekkjarmót, þar hittist útskriftarárgangur 1987 frá gaggó á Hellu.
Ég veit eiginlega ekki hvernig mér líður með þetta, að hitta þarna saman í hóp fólk sem ég hef ekki hitt að neinu ráði í meira en 20 ár, spennó.
Ég er búinn að láta yfirfæra gamlar video upptökur af vhs yfir á dvd af þessu tilefni og á ég von á að flestum þyki gaman að því að sjá þessar upptökur aftur eftir öll þessi ár því ég held að ég sé sá eini í hópnum sem á þetta efni til.
Um er að ræða tvær stuttar leiknar myndir sem við gerðum í skólanum, annarsvegar myndina "Bankaránið" og svo "heimildamynd" um fyrsta nemanda skólans sem kemur í heimsókn í gamla skólann sinn.
Ég horfði á þetta í gær og......úff......frekar óþægilegt : )

En það verður gaman í kvöld örugglega.

23.10.07

Erfitt að vera prestur.

Það hlítur að vera erfitt að vera prestur þessa dagana, ekki bara eru kynvillingar að heimta að fá að giftast eins og venjulegt fólk í kirkjum landsmanna heldur var að koma út ný útgáfa af biblíunni sem tók bara tíu ár að klúðra !
Í Kastljósinu í kvöld mátti sjá umræðuna í þessum málum kristallast í klæðnaði viðmælanda Sigmars, þeir séra Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkju prestur og séra Geir Waage prestur í Reykholti mættu til dyranna eins og skoðanir þeirra leyfa.
Séra Geir Waage var klæddur í prestsskrúða hertur upp í háls stútfullur af aldagömlum kreddum og þröngsýni á meðan Séra Hjörtur Magni kom í fráhnepptri ljósri skyrtu og í svörtum bol innanundir.

Um það sem fór fram þarf ekkert að segja, klæðnaðurinn sagði allt sem segja þarf.

21.10.07

Bíó: I Now Pronounce You Chuck and Larry (2007)

Leikstjóri: Dennis Dugan (The Benchwarmers (2006)

Aðalhlutverk : Adam Sandler, Kevin James, Jessica Biel, Dan Aykroyd, Ving Rhames, Steve Buscemi.

Myndin fjallar um félagana Chuck og Larry sem starfa saman í brunaliðinu.
Eftir einn háskasaman dag í vinnunni ákveður ekkilinn Larry að hann skuli tryggja sig til að börnin hans tvö eigi fjárhagslega framtíð ef hann skyldi falla frá.
En til að fá tryggingu þarf hann að vera giftur og "besta" leiðin til að fara framhjá kerfinu er að giftast besta vini sínum Chuck.

En þetta reynist vera tómt vesen.

Ágætis gamanmynd sem bíður uppá fínan aula og homma húmor.

Einkunn 7/10

20.10.07

Tilkynning !


Ég borða flatkökur !
Og ekki bara nóg með það heldur eru þær bara helvíti góðar, sérstaklega með hangiketi.
Vil ég að þessu tilefni þakka þeim fjölmörgu sem í gegnum árin hafa reynt að sannfæra mig um ágæti flatkökunar, eins og t.d. á þeim fjölmörgu Þjóðhátíðum sem maður hefur farið á í Vestmannaeyjum og eins í öllum þeim útilegum sem maður hefur farið í til Þórsmerkur (djöfull er mig farið að langa þangað aftur).

En hvar brotnaði ég ?
Jú ég fór fyrir c.a. fjórum vikum til M7 og fjölskyldu og þar var ásamt mörgu öðru í boði smurðar flatkökur með hangiketi, og til að þykjast vera dannaðri en ég í raun er þá fékk ég mér flatköku, þessa öldnu baksturs hefð okkar Íslendinga..............og svo fékk ég mér aftur..........og líklega ekki í þriðja skiptið vegna þess að ég var að reyna að vera dannaðri en ég í raun er.

En ekki má taka frá þessa löngu þróun sem þessi nýfundna ást mín er á flatkökunni, þetta er búið að vera að þróast í mörg ár.

Takk til ykkar allra sem hönd hafa lagt á plóginn.

Hvað næst ?
Rúgbrauð....usss ullabjakk nei !

17.10.07

Bíó: The Number 23 (2007)

Leikstjóri: Joel Schumacher
Aðalhlutverk: Jim Carrey, Virginia Madsen.

Walter Sparrow sem starfar sem hundafangari er giftur og á einn son.
Dag einn gefur konan hans honum bók sem heitir The number 23 og við lestur á bókinni fyllist Walter þeirri trú að bókin sé um hann og töluna 23 sem við athugum virðist vera ráðandi í hans lífi.

Sæmileg spenna, ágætt plott.

Einkunn 6/10

Íslensk fyndni

Það kemur stundum fyrir þegar einhver á t.d. afmæli að "vinirnir" setja í Fréttablaðið auglýsingu þar sem viðkomandi er auglýstur á einhvern lygilegan hátt.
Þessi var í Fréttablaðinu í um daginn.

15.10.07

Slagsmál á landsleiknum !

Ég var á vellinum á laugardag og sat rétt hjá þessum stóra hópi Íslendinga sem sér um stuðið á vellinum.

Á milli mín og stuðboltana var lítill hópur Letta sem var að sjálfsögðu í stuði yfir gengi sinna manna, en eitt fór í taugarnar á mér við stuðhópinn okkar íslenska og það var þegar þeir sungu oftar en einu sinni "who the fuck are Lativa" við lagið Go West (Village People) sem mér þótti einkar óviðeigandi og varla til annars en að æsa upp stuðningsmenn Letta.

Nú gafst ég upp á leiknum og yfirgaf völlin þegar ca 5 mín voru eftir af venjulegum leiktíma og varð þess vegna ekki var við nein slagsmál en ég er alveg viss um að við Íslendingar myndum varla þola svona níðsöngva um okkur á erlendri grund, sérstaklega undir áhrifum áfengis.

Djöfull er annars óþolandi að fara á völlinn að horfa á þetta helvítis landslið okkar spila, loksins þegar maður heldur að þeir séu komir í gír þá skíta þeir upp á bak !

14.10.07

Laugardagslögin.

Nú eru tveir þættir búnir af Laugardagslögunum og þó svo að þættirnir séu öðruvísi en ég hélt að þeir yrðu þá eru þeir samt ágætir sem skemmtun, sérstaklega eru Tvíhöfða menn að gera mig glaðan.
Stjórnendur þáttarins eru fínir og eru Ragnhildur og Gísli einkennilegur dúett sem virkar fínt, beauty and the bald guy.
En lögin ?
Jú eins og vanalega valda þessi framlög listamannana miklum vonbrigðum, í fyrsta þættinum voru flutt lög eftir Guðmund Jóns, og Fabúlu og Hafdísi Huld, öll þrú lögin voru slöpp en lag Guðmunds Jóns komst áfram enda er landinn endalaust tilbúinn að hlusta á hvítasunnuflokkinn kyrja.
Í þætti gærkvöldsins voru flutt lög eftir Dr. Gunna, Magga Eiríks og Svölu Björgvins.

Ég hélt í einfeldni minni að nú væri von á tveimur frambærilegum lögum enda doktorinn og Maggi gríðargóðir lagasmiðir, en nei aldeilis ekki !
Doktorinn sveik mig algerlega með hundleiðinlegu tyggjópoppi, og er það alveg furðulegt að þessi fyrrum pönkari skuli vera farinn svona langt frá því sem hann gerir best.
Svo var komið að lagi Svölu sem var róleg ballaða sungin af hvítasunnudrengnum Edgari Smára, bara svona týbíst prump sem á einhvern hátt stendur þó uppúr eftir kvöldið en þá aðallega vegna þeirra vonbrigða sem hin tvö lögin ullu mér.
Maggi Eiríks sem ég fullyrði að er besti laga og jafnvel textasmiður sem þjóðin hefur átt kom svo með sitt framlag sem var flutt af Pálma og einhverri stelpu með honum.
Þegar nokkrar sekúndur voru liðnar af laginu greip mig mjög sterk tilfinning að ég þekkti þetta lag og eftir nokkrar sekúndur í bót var ég búinn að finna það lag í höfðinu.
The Heart Of Rock & Roll flutt af Huey Lewis And The News heitir lagið og er grunn laglínan ótrúlega lík lagi Magga....eða líklega öfugt : )
Ager vonbrigði en lagið hans Huey komst áfram þetta kvöldið og nú á ég enga von lengur um frumlegheit í þessari forkeppni eftir svik doktorsins, að fráskildum Barða í Gangbang.

Langbesta lagið só far er lagið Erfitt flutt af Júlla !

11.10.07

Til lukku


Sunnudagur 4 júní 2006
Til hamingju öll saman með vera búin að fá gamalmenni með dauða rottu á hausnum sem borgarstjóra í Reykjavík !



Þetta skrifaði ég hundfúll yfir úrslitum borgarstjórnarkosningana daginn áður.

Í dag er ég sáttur : )

Bíó: 1408 (2007)

Leikstjóri: Mikael Håfström
Aðalhlutverk: John Cusack, Samuel L. Jackson

Myndin fjallar um Mike Enslin sem er rithöfundur bóka raðar sem fjallar um kynni hans af þekktum draugahúsum og þeim ferðabrannsa sem oft er tengdur draugasögunum, sem alltaf reyndust ekki sannar.
Mike Enslin fréttir svo af herbergi 1408 á hóteli einu í New York og áhveður að gista þar eina nótt þrátt fyrir hörð mótmæli hótelstjórans.
Hann á eftir að sjá eftir því : )

Þetta er ágætis hrollur byggður á sögu Stephens King.

Einkunn 7/10

Aðeins meira um Yoko

Alveg finnst mér merkilegt að á meðan á þessari heimsókn Yoko og Ringo hefur staðið hefur Rás 2 keppst við að spila eins mikið af lögum með Bítlunum og John Lennon.
Ekki það að Rás 2 spili lítið af þessari tónlist alla aðra daga, nei á Rás 2 starfa nefnilega margir dagskrárgerðar menn og konur sem voru upp á sitt besta einmitt á þeim tíma þegar Bítlarnir voru aðal, en það er bara eins og þetta fólk hafi fengið vítamínsprautu í rassgatið fyrir nokkrum dögum, skil ekki svona fólk.

Jæja best að hlusta á nokkur Wham! lög : )

10.10.07

Friðarsúla.

Í gærkveld var kveikt á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey.
Mér finnst þetta flott, þó að það megi auðvitað deila um allt þetta friðar tal hér á landi þegar við erum ein af hinum "viljugu þjóðum" og Nato ráðstefna er í gangi nokkur hundruð metrum frá friðarsúlunni.
En kannski er það bara einmitt best að tendra á ljósinu þegar að allt þetta er í gangi, til lítils að vera að minna á frið ef hann umlykur okkur hvort eð er.

Annars finnst mér "kveikt á tímarnir" á ljósinu vera skrítnir, en það mun loga frá fæðingardegi John Lennons, 9. október ár hvert, til 8. desember sem er dánardægur hans. Auk þess mun vera kveikt á súlunni á gamlársdag og mun loga á henni í viku þaðan í frá og að lokum mun einnig loga á súlunni í viku í mars ár hvert. Loga mun á súlunni frá sólarlagi fram að miðnætti á fyrrgreindum tímabilum.

Persónulega hefði ég viljað sjá ljósið loga lengur inn í skammdegið en til 8 des.

Engu að síður flott ljós og ég púa á þá sem segja þetta vera sjónmengun og skemmi fyrir stjörnubjörtum kvöldum í Reykjavík.
Það vita allir að til að njóta stjörnubjarts himnis þarf að fara út fyrir bæinn hvort eð er.

Þessa flottu mynd tók Björnae


Smella á myndina til að stækka.

8.10.07

Aldrei leiðst í vinnunni ?

Þessi kona náði þeim merka áfanga að hafa unnið á sama vinnustað í 40 ár.
Í tilefni þess var tekið viðtal við hana í sjónvarpsfréttum og í blöðum.
Það sem sló mig hinns vegar var að í þessum viðtölum virtist konugreyinu drepleiðast, hún brosti ekki svaraði snubbótt og virtist bara ekkert vera í neinum fíling.
Skoðið myndina, lítur þessi kona út fyrir að njóta vinnunar ?

6.10.07

David Huggins golfari framtíðarinnar.

Átta ára gamall enskur golfari gerði sér lítið fyrir og sló holu í höggi á golfmóti í Suffolk á Englandi um daginn. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta er í þriðja skiptið sem hinn ungi gólfari nær holu í höggi.

David Huggins var aðeins fjögurra ára gamalla þegar hann í fyrsta skipti sló holu í höggi. Hann var sex ára þegar hann gerði það í annað skiptið. David fagnaði afrekinu í gær með því að kaupa sér gosdrykk. Hann á sér þann draum að verða betri en Tiger Woods en sá var hins vegar sex ára þegar hann sló sína fyrstu holu í höggi.

5.10.07

Radio Ga Ga

Það er búið að vera auglýsa einhvert Queen tribute show núna þessa viku með "bestu Queen tribute hljómsveit íslands" eins og það séu margar slíkar starfandi á landinu : )
Get ekki ímyndað mér annað en að það sé prump !
Hér er klassískur orginall.

4.10.07

Komin heim með Trausta Leó


Jæja ég hef tekið smá hlé héðan vegna komu sonarins en eins og allir vita kom snáðinn á heiminn á mánudag 1. okt.
Nú er ég komin í orlof í tvær vikur en eftir það tekur hversdagslífið við þó svo að það sé varla mikið hversdags þegar maður er með svona kríli á heimilinu og annað gríðar áhugasamt svolítið stærra kríli líka : )

30.9.07

011007 eða 021007 ?

Þar er efinn, eða hvað : )
Nú er svo komið að ekki verður beðið lengur eftir komu sonarins og verður frúin sett af stað á morgun (eigum eftir að fá tíma) og vona ég að það verði sem fyrst á deginum svo að þetta dragist ekki á langinn.
Annars er það víst þannig með svona "belgsprengingar" að þær duga víst ekki alltaf til að koma konunum af stað í fæðingu og ef að svo fer hjá okkur verður bara gerður keisari á þriðjudag.
Já þannig er nú það, kl 8:30 í fyrramálið fáum við að vita hvenær er mæting upp á spítala og þangað til veit ég ekki meir : )

29.9.07

Bíó: Shooter (2007)

Leikstjóri: Antoine Fuqua, Training Day (2001), Tears of the Sun (2003).
Aðalhlutverk: Mark Wahlberg, Danny Glover, Rhona Mitra.
Myndir fjallar um fyrrverandi leyniskyttu bandaríska hersins sem er fengin til að vera ráðgjafi í hvernig sé best að verja forsetann fyrir morðtilraun úr launsátri.
En það eru maðkar í mysu þeirri.
Allt í lagi afþreying sem gleymist fljótt.

Einkunn: 6/10

28.9.07

Íran og kjarnavopn.

Á flakki mínu um mbl.is þá rakst ég á tengil á síðu Ólínu Þorvarðardóttur þar sem hún var að fjalla um móttökurnar sem Mahmud Ahmadinejad Íransforseti fékk í Columbiaháskóla í New York í fyrradag, fín umfjöllun hjá Ólínu en það sem mér fannst best var eitt comment sem Sigurður M. Grétarsson skrifaði.

Ég tók mér það leyfi að fá að "láni" commentið hans og setja það inn hér, þar sem það er sem talað úr mínum munni en ég kann bara ekki að tjá mig um svona lagað : )

Þetta skrifar Sigurður:

Ég held að það sé ekki nokkur spurning að Íranir eru að koma sér upp kjarnorkuvopnum. En í því sambandi þurfum við að hafa ákveðin atriði í huga.

Í fyrsta lagi þá hefur Íran aldrei ráðist á annað ríki að fyrra bragði.

Í öðru lagi eru kjarnorkusprengjur í raun ganglausar, sem árásarvopn, nema hjá brjálæðingum, sem eru tilbúnir til að sprengja andstæðinga sína í tætlur og vera fyrir bragðið útskúfað af alþjóðasamfélaginu og efstur á lista yfir stríðsglæpamenn, sem ber að handtaka. Kjarnorkusprengjur eru hins vegar ágæt varnarvopn í skilningi ógnarjafnvægis. Menn hika einfaldlega við að ráðast á land, sem hefur yfir slíkum vopnum að ráða.

Hitt er svo annað mál að það er hræsni í meira lagi þegar ríki, sem sjálf eru kjarnorkuveldi, fara á límingunum yfir því að önnur ríki verði sér líka út um slík vopn en eru samt ekki tilbúin til að eyða sínum vopnum. Hvernig væri að fara fram á að Bandaríkjamenn eyði fyrst sínum vopnum áður en farið er að stöðva Írani í að ná sér í slík vopn. Gleymum því ekki að Ísraelar eiga líka kjarnorkuvopn.

Menn gætu svarað þessu, sem svo að það sé alls ekki sama haða ríki eigi kjarnorkuvopn. Það er rétt. En hvernig metum við hvaða ríkjum er treystandi fyrir kjarnorkuvopnum og hverjum ekki? Er Bandaríkjamönnum betur treystandi en öðrum? Ef menn halda því fram væri ekki úr vegi að skoða svörin við eftirtöldum spurningum?

Hvaða ríki hafa notað kjarnorkuvopn?

Hvaða ríki hafa gert slíka árás á borgaralegt skotmark, það er borg en ekki herstöð?

Hvaða ríki hafa gert þetta oftar en einun sinni, til dæmis tvisvar?

Hvaða ríki hampar í dag þeim forseta sínum, sem gaf skipun um allt ofangreint en fordæmir hann ekki, sem þann stríðsglæpamann, sem hann óneitanlega var fyrir vikið?

Síðan geta menn spurt sig um það hvort það ríki, sem allt þetta á við um sé betur treystandi en Írönum fyrir kjarnorkuvopnum?


Vel mælt ekki satt ?

27.9.07

Scottie Pippen að fara að spila í Finnlandi !

Ég rakst á þess frétt á netinu og verð að segja að ég varð kvumsa : )
Já þessi sex-faldi NBA meistari með Chicaco Bulls kvu vera að skrifa undir samning við finnska liðið Torpan Pojat (ToPo) um að spila með þeim tvo leiki, einn í desember og hinn í janúar.
Pippen sem er orðinn 41. árs gamall er þó ekki eina NBA stjarnan sem leikur í Finnlandi því Dennis Rodman sem líka lék með Chicaco Bulls og varð með meistari a.m.k. einu sinni lék með ToPo einn leik árið 2005.

Kannski að Pétur Guðmunds gæti gert góða hluti hjá Jan Mayen Dunkmasters ?

Smá joke

A Mexican, an Iraqi and a Texas girl are in the same bar.

When the Mexican finishes his beer, he throws his glass in the
air, pulls out his pistol and shoots the glass to pieces.
He says, "In Mexico, our glasses are so cheap, we have so many of them that we don't need to drink with the same one twice."

The Iraqi, obviously impressed by this, drinks his beer, throws his mug into the air, pulls out his AK-47 and shoots the glass to pieces.
He says, "In Iraq we have so much sand to make glasses that we don't need to drink with the same one twice either."

The Texas girl, cool as a cucumber, picks up her beer, downs it in one gulp, throws the glass in to the air, whips out her 45, and shoots the Mexican and the Iraq.

Catching her glass, setting it on the bar and calling for a refill, she
says,
"In America we have so many illegal Mexicans and Arabs that we don't have to drink with the same ones twice."

God Bless America!

25.9.07

Hvar er draumurinn ?

Samkvæmt mínum draumi átti sonurinn að koma í heiminn í gær, en ekkert varð af því.
Núna er konan komin rúmlega viku framyfir og er ég farinn að halda að það verði gangsetning og ekkert annað sem dugi á drenginn.

Ojæja, svona er þetta stundum, góðir hlutir láta stundum bíða eftir sér : )

24.9.07

Bíó: Mr. Bean's Holiday (2007)

þAð þarf ekkert að segja um þessa mynd, hún er bara alveg eins og þú átt von á.
Ágætlega fyndinn harkfalla og aulahúmor ala Mr. Bean.

Einkunn 6/10

23.9.07

Hólí krapp....erum við að tala um Íslandsmeistara Vals ?

Valur hrósaði sigri á FH, 0:2, í toppslag Landsbankadeildarinnar í Kaplakrika.
Baldur Ingimar Aðalsteinsson og Helgi Sigurðsson skoruðu mörkin og með sigrinum náði Valur efsta sæti deildarinnar. Valur hefur 35 stig en FH 34. Í lokaumferðinni mætir Valur liði HK á Laugardalsvelli en FH leikur við Víking á útivelli.
Og með markinu er Helgi Sig orðinn einn markahæðstur í deildinni.
Áhorfendur á Kaplakrika voru 4.238 !

Úff úff úfff..............þetta er orðið verulega spennó !

22.9.07

Bíó: Vacancy (2007)

Leikstjóri: Nimród Antal
Aðalhlutverk: Kate Beckinsale, Luke Wilson.
Myndin fjallar um hjón sem eru á leiðinni í brúðkaupsafmælisveislu foreldra hennar.
Sjálf eiga þau í vandræðum í sínu sambandi eftir að hafa misst son í slysi.
Þegar að bíllinn bilar neyðast þau til að kaupa sér gistinótt á afskekktu vegamóteli með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Ágætis spennumynd sem kemur samt ekki með neitt nýtt og ferskt.

Einkunn: 6/10

18.9.07

Pole Fitness !

Svona hljóðar auglýsing frá Heilsuakademíunni :

Heilsuakademían kynnir Pole Fitness í fyrsta sinn á Íslandi !
Pole Fitness hefur slegið í gegn víða í Evrópu og eru sífellt fleiri líkamsræktarstöðvar erlendis að taka upp Pole Fitness.

Pole Fitness er alþjóða líkansræktarkerfi þar sem súla er notuð sem megin líkamsræktartækið. Í Pole Fitness er blandað saman styrktaræfingum og dansi þar sem styrktaræfingarnar byggjast mest upp á æfingum þar sem stuðst er við súluna.
Mikið er lagt upp í tækni og styrktaræfingum og þú kemst í frábært form eftir stuttan tíma.
Pole Fitness er frábær líkamsrækt þar sem dansi, styrk, úthaldi og skemmtun er blandað saman !
Kennarar Heilsuakademíunar í Pole Fitness hafa hlotið alþjóðleg kennslu réttindi í Pole Fitness.


Já þannig hljóðar það.
Glöggir lesendur eru líklega búnir að átta sig á því að hér er á ferðinni ekkert annað en hið alræmda og þrælbannaða þjóðfélagsmein "súluskak" !

Ég er farinn að halda að nýr eigandi Orkuversins (Heilsuakademíunar) sé hinn gríðar glaðbeitti Geiri, gjarnan kenndur við Goldfinger.
Einnig finnst mér gott til þess að vita að meyjarnar (kennarnir) hans Geira hafi stundað skakið víða um lönd áður en hingað er komið : )

Ellimerki ?

Ég hlýt að vera orðinn gamall þegar að komandi dagskrá Sjónvarpsins setur smá spenning í mig.

Tökum dæmi :

Útsvar: (alltaf gaman að svona þáttum)
24 stærstu bæjarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum.

Kiljan: (veit ekki alveg með þennann, en Egill er snilli svo maður veit aldrei)
Á miðvikudagskvöldum í vetur verður á dagskrá nýr bókmenntaþáttur í umsjón Egils Helgasonar. Þar verður fjallað um bækur úr ýmsum áttum og af öllum toga. Kolbrún Bergþórsdóttir og Páll Baldvin Baldvinsson eru álitsgjafar þáttarins og svo ætlar Bragi Kristjónsson fornbókasali að stinga inn nefinu endrum og sinnum.

07/08 bíó leikhús (þessi ætti að verða fínn)
Fjörlegur þáttur með alvarlegum undirtóni þar sem púlsinn tekinn á kvikmynda- og leikhúslífinu. Ritstjóri er Þorsteinn J. og aðrir umsjónarmenn Andrea Róberts, Ásgrímur Sverrisson og Elsa María Jakobsdóttir.

Laugardagskvölds skemmtiþáttur
(veit ekki nafnið)
Þetta verður skemmtiþáttur með alls kyns uppákomum, gríni og glensi. Meðal þeirra sem koma fram í þáttunum eru Jón Gnarr, Sigurjón Kjartansson, Selma Björnsdótir og fleiri en meginþemað verður lagakeppni á milli níu þekktra lagahöfunda.
Þessir níu lagahöfundar eru Guðmundur Jónsson úr Sálinni, Dr. Gunni, Barði í Bang Gang, Magnús Þór Sigmundsson, Magnús Eiríksson, Hafdís Huld Þrastardóttir, Svala Björgvinsdóttir, Fabúla og Andrea Gylfadóttir. Hvert þeirra leggur til þrjú lög og í hverjum laugardagsþætti eru spiluð þrjú lög sem keppa um sigur það kvöldið. Þjóðin kýs á milli þessara þriggja laga og sigurlagið kemst í úrslitaþáttinn. Þegar þessari útsláttarkeppni er lokið fá aðrir lagahöfundar, sem sendu inn lög eftir auglýsingu, að reyna sig í tveimur þáttum. Að síðustu verður aukaþáttur þar sem einskonar „wildcard" lag verður valið. Þannig verða eftir 12 lög sem keppa um að verða framlag Íslands í Eurovision-keppninni næsta vor.

Svo er eitthvað meira sem ég man ekki eftir í augnablikinu.

Flott hjá Sjónvarpinu að sparka svona í innlenda dagskrárgerð enda er innlent efni oftast það alvinsælasta sem er í boði í sjónvarpi yfirleitt.

Auðvitað er ég ekkert gamall, ég er bara fullur metnaðar.......eins og Rúv !

16.9.07

Bíó: Dot The I (2003)

Leikstjóri: Matthew Parkhill
Aðalhlutverk: Gael García Bernal og Natalia Verbeke.

Sæmileg mynd um furðulegan ástarþríhyrning svik og hefndir.
Einkunn: 6/10

Bíó: A Very Long Engagement (2004)

Leikstjóri: Jean-Pierre Jeunet - Alien: Resurrection (1997)Amélie (2001)
Aðalhlutverk: Audrey Tautou.

Fínasta mynd og er myndataka og útlit allt hið glæsilegasta.

Einkunn 8/10

16 sept og enginn sonur !

Í dag er runninn upp 16 september og ekkert bólar á syni mínum en hann átti einmitt að kíkja á okkur í dag, lítið að marka þessi nútímavísindi : )
En samkvæmt draumi mínum mætir kallinn á svæðið þann 24 þannig að ég get verið rólegur aðeins lengur.

13.9.07

Mbl brillerar.

Þetta er af mbl.is í dag og segir af frábærum leik Craig Bellamy í gær með landsliði Wales :
Bellamy, sem missti af leik Wales gegn Þýskalandi síðasta laugardag vegna veikinda nýfæddrar dóttur sinnar, sagði að eini gallinn við leikinn hefði verið að sér skyldi ekki takast að skora þrennu en hann gerði mörkin tvö strax í þriðju hálfleik. Hann átti síðan stóran þátt í sjálfsmarki sem Slóvakar skoruðu.

Eru þrír hálfleikir í fótbolta ?

Snillingar

12.9.07

Johnny Cash - God's Gonna Cut You Down

Í dag eru 4 ár frá andláti Johnny Cash.
Hér er smá á-minning.

Hvert fóru þau ?

Ég er að horfa á leik Íslands og Norður Íra og í augnablikinu er staðan 1-0, gaman að því : )

En hvar eru flottu ljósaskiltin sem voru umhverfis völlinn á laugardag þegar við lékum á móti Spánverjum ?
Getur verið að spænskir auglýsendur hafi komið með þetta til landsins vegna leiksins ?
Eða stal Árni Johnsen þeim ?

11.9.07

Orkuverið ?

Ég hef verið nokkuð duglegur að mæta í ræktina undanfarnar vikur og jafnvel mánuði og er á mínu þriðja árskorti hjá Orkuverinu í Egilshöll.
Mér hefur alltaf líkað vel að vera hjá þessari stöð, hún er passlega lítil og það er ekkert um World Class syndromið (mæta í flotta gallanum og kjafta svo við hitt fólkið í flottu göllunum) og aldrei bið eftir tækjum.

En á mánudag gerðist svolítið skrítið, þegar ég kom á staðinn var bara ekkert Orkuver lengur til heldur bara Heilsuakademían !
Nýtt starfsfólk í móttökunni og líka þjálfararnir nýjir.

Til að gera langa sögu stutta þá var opnuð einhverskonar líkamsrækt við hliðina á Orkuverinu fyrir ca ári síðan, hana opnuðu eigendur Egilshallarinnar við litla hrifningu eiganda Orkuversins sem leigði pláss fyrir sína rækt af þessum sömu aðilum, skítt ekki satt ?
En svo núna algerlega ótilkynnt hefur Georg Ögmunds eigandi Orkuversins selt Orkuverið og núna heitir þetta batterý bara Heilsuakademían !
Mér finnst afar illa að þessu staðið, hvorki Orkuverið né Heilsuakademían hafa séð sér fært um að kynna þennan gjörning fyrir okkur viðskiptavinum stöðvarinnar, og til að toppa lélega viðkynningu þá byrja nýjir eigendur á því að rukka fyrir hluti sem hjá Orkuverinu voru gjaldfrjálsir !
Fussum svei !

Mitt kort rennur út í byrjun febrúar næstkomandi og ef fer sem horfir þá verð ég að velta því fyrir mér hvort ég vilji vera þarna áfram eða ekki.

9.9.07

Ísland 1-1 Spánn

Ísland gerði í gær jafntefli við Spán á Laugardagsvelli.
Íslendingar voru manni fleiri mest allan leikinn en náðu samt aðeins jafntefli, líklega er það samt nokkuð góður árángur.
Það er ljóst að Alonso steig á lærið á Arnari Viðari (held örugglaga að það hafi verið Arnar) og verðskuldaði þess vegna rautt, en Arnar hinsvegar braut á Alonso með því að klemma hann fastan með fótunum og þess vegna er alveg möguleiki að þetta hafi verið óvart hjá Alonso.
Línuvörðurinn sá þetta hins vegar mjög vel og var alveg viss.
Ég skemmti mér alveg konunglega við að hlusta á lýsinguna hjá RUV þar sem þulurinn fór mikinn við að dásama íslenska liðið, og hversu miklir yfirburðir þeirra hafi verið.

Annars finnst mér svolítið hlutdrægt að halda því fram að Íslenska liðið hafi verið eitthvað frábært, þeir voru einfaldlega manni fleiri nánast allan leikinn, þeir voru hinns vegar klaufar að vera ekki búnir að klára leikinn löngu fyrir jöfnunarmarkið.

Það verður spennandi að sjá þetta "frábæra" landslið okkar takast á við Norður-Íra á miðvikudaginn, en við jörðuðum þá á útivelli 0-3.
Þá verður Eiður líklega með (nema Barcelona banni það) og væntingarnar komnar í topp.

Eitthvað segir mér að sá leikur verði vonbrigði fyrir þá sem skilja ekki hvers vegna við erum í 117 sæti á heimslistanum ásamt Súdan, en þeir notast einmitt við afskorin mannshöfuð í staðin fyrir bolta.

8.9.07

Bíó : No Body Is Perfect (2006)


Þessi er ein af þeim sem var sýnd á kvikmyndahátíð Græna Ljósins.

Þetta er heimildamynd um neðanjarðarklúbba þar sem öfgar líkamlegra nautna eru kannaðar
eins og t.d. S&M og dóminerarnir.

Ekkert spes mynd þó hún sé líklega sæmilegur gluggi inn í þennan dulda heim öfgana.

Einkun: 5/10

6.9.07

Luciano Pavarotti - Ave Maria - Schubert

Luciano Pavarotti (October 12, 1935 – September 6, 2007)
Hvílíkur snillingur !
Minningin lifir.

5.9.07

Bíó : Shortbus (2006)


Ég ákvað að reyna að sjá sem flestar myndir sem voru til sýningar á kvikmyndahátíð Græna Ljósins, þessi mynd er ein af þeim.

Myndin fjallar um konu sem starfar sem pararáðgjafi og kynnist í starfinu hommapari sem kemur til hennar til að leita sér hjálpar.
Hún kynnist í gegnum hommana litlum klúbbi sem heitir Shortbus og er kynlífsklúbbur þar sem fólk af allskonar kynhneigð kemur saman til að blanda geði og líkamsvessum.

Myndin inniheldur mjög opinská kynlífsatriði, án þess þó að verða klámmynd, allt er einhvernvegin eðlilegra en það.

Ágætis mynd sem segir ágætis sögu og inniheldur frábæra tónlist.

Einkun. 7/10

Nei takk

Í dag var mér boðin miði á leik Íslands og Spánar á laugardaginn.
Það er skemmst frá því að segja að ég afþakkaði pent.

Bara það að það séu tveir leikmenn Liverpool í byrjunarliði Spánar dugar ekki til að ég fari á völlinn !

Nei takk.

4.9.07

Síminn 3G - Síðasta kvöldmáltíðin

Flott aulýsing, og það fyrsta sem fór í gegnum kollinn á mér eftir áhorfið var : mikið á trúaða liðið eftir skæla yfir þessu : )
Gaman að því.

31.8.07

Gregorius: NMKY (Finnish YMCA cover)

Þessi mikla snilld er úr tiltölulega nýlegum grínþætti í Finnlandi en ekki gömul upptaka með þáverandi tískuáhrifum : )
Engu að síður alger snilld !
Takk M2

Tyson Gay ?

Ein aðal hetjan á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem haldið er í Osaka í Japan þessa dagana heitir Tyson Gay.
Skrítið nafn, Tyson minnir mann alltaf að mikinn nagla og hörkutól, rotarann mikla Mike Tyson og svo er það hins vegar nafnið Gay............já...........Marvin Gaye kannski : )

29.8.07

Busun ?

Ég er auðvitað engin unglingur lengur ég veit, en ég verð að viðurkenna að busanir hafa alltaf farið mikið í taugarnar á mér.
Á minni miklu skólagöngu hef ég aðeins einu sinni verið busaður og það var við inngöngu í gaggó, þar slapp ég mjög vel enda búinn að kynnast vel þeim sem áttu að busa mig og svo spillti líklega ekki fyrir að það voru ekki margir sem treystu sér í að busa mig : )
Svo þegar að það kom að mínum árgangi að busa, sem var reyndar tvo vetur í röð þá var það á mun mannlegri hátt og þá þannig að allir höfðu gaman að.
Svo sá ég í fréttablaðinu í dag frétt um busun á nýnemum í íþróttafræði í Háskólanum í Reykjavík þar sem það var hinn algerlega óþolandi Egill „Gillzenegger“ sem skipulagði herlegheitin.
Meðal þeirra sem var busuð er markamaskína meistaraflokks kvenna í Val, Margrét Lára Viðarsdóttir.
Á meðfylgjandi mynd þar sem markadrottningin þurfti að láta sprengja blöðru á afturendanum á sér með vafasömum aðferðum.
Mér finnst þetta rosalega hallærislegt og skil reyndar ekki hvers vegna það er ekki fyrir löngu búið að leggja þessa tímaskekkju af !

Miss Teen USA 2007 - South Carolina answers a question

Hólí krapp !
Óneitanlega sæt............en gvuð minn almáttugur....ha ha ha ha ha ha ha ha ha !!!!!

27.8.07

Góður draumur maður !

Mig dreymdi í nótt komu sonar míns væntanlegs.
Samkvæmt draumnum kemur hann í heiminn 24 sept, rúmri viku eftir áætlun.
Reyndar var eitthvað ekki alveg á hreinu með tímann þ.e. hvort hann fæddist rétt fyrir eða eftir miðnætti, og gæti því dottið rétt eftir miðnætti þann 23 eða fyrir miðnætti 24 sept.........allavega rétt um miðnætti var málið og dagsetningin var 24 : )
Hann var í draumnum vel vakandi og minnti reyndar frekar á 3-4 vikna gamalt barn en nýfætt.
Svo tók ég eftir því að mér þótti hann vera mjög líkur mér, hvort sem það er nú gott eða slæmt : )

Þetta var algerlega frábær draumur og honum fylgdi gríðarlega góð vellíðan þegar ég vaknaði og hefur dagurinn í dag verið léttur og skemmtilegur í framhaldinu.

Það er ljóst að biðin og spennan er farinn að hafa áhrif á mann í svefni sem vöku og eykst með hverjum degi, og svona draumar eru svo sannarlega velkomnir í biðinni : )

Ammli.

Á laugardagskveld fórum við hjónaleysi í ammli til M6 og hans kvinnu en samtals urðu þau 69 ára.
Skemmst er frá því að segja að þetta var hin ljúsasta skemmtun enda ekki annað hægt í góðra vina hópi.
Til lukku bæði tvö og hér er mynd af M6 tekin við þetta tilefni : )

25.8.07

Hvað getur maður sagt ?



Auðvitað ættu mínir menn að vera # 1 en það þurfti dómaraskandal til að hindra það : )
Hvað er að gerast hjá meisturunum ?
Hvað sem það er þá ætla ég að njóta þess eins lengi og ég get....sem verður líklega ekki lengi : (

George Carlin um trúarbrögð.

Fyrir þá sem hafa séð þessa snilld er örugglega kominn tími til að rifja upp : )

http://www.youtube.com/watch?v=8uBAPbOWLxc&mode=related&search=

24.8.07

(Ó)gagnrýni ?

Íslenska plata vikunar á Rás 2 þessa vikuna er platan "Guðmundur R - Íslensk tónlist".
Fínasta viðleitni hjá Rás 2 að vera með svona plötukynningar í hverri viku, og sérstaklega gott þegar eiga í hlut tónlistarmenn sem venjulega fá ekki mikla umfjöllun t.d. vegna þess að þeir eru að stíga sín fyrstu skref í tónlistarútgáfu.

Á heimasíðu Rásar 2 er þessi kynning :

Það er Guðmundur sem á plötu vikunnar að þessu sinni. Maðurinn er líkast til þekktastur fyrir feril sinn með Sú Ellen hér á árum áður.
Guðmundur er nú aftur á móti mættur með þessa líka fínu sólóplötu sem allir helstu aðdáendur, og þeir skipta þúsundum gott fólk, Sú Ellenar hafa varla haldið vatni yfir útkomu plötunnar.
Fyrir tilstylli Rásar 2 fáið þið, landsmenn góðir, að heyra þessa tímamóta plötu fyrst hér í útvarpi allra landsmanna. Á hverjum klukkutíma munum við heyra lag af plötunni auk þess sem heppnir hlustendur geta átt þess kost að vinna sér inn eintak af plötunni.
Rauðletrun mín.

Gott og vel, í gær féll svo dómurinn í þættinum Poppland þar sem Andrea Jónsdóttir gaf sitt álit.
Það er skemmst frá því að segja að að þessi frum raun Guðmunds féll algerlega á prófinu hjá Andreu, sem sagði hann m.a. jarma í flestum lögum.

Svo reyndar fær hann þokkalega dóma fyrir lagasmíðar og textagerð en bætir svo við að hans heimafólk (Egilsstaðir held ég) gæti verið móttækilegra fyrir þessari mússík en hún, það má svo lesa hvað sem er út úr þeirri fullyrðingu.

Ég veit ekki, er verið að gera einhverjum greiða með svona umfjöllun í útvarpi landsmanna ?
Það er allavega alveg á hreinu að hann fær ekki byr í seglin við þessa ógagnrýni.

23.8.07

Er ég nörd ?

Nei auðvitað ekki !

Ég tók smá próf á þessari síðu :http://www.nerdtests.com/ft_nq.php

Nokkrar spurningar sem sanna það sem ég hef alltaf vitað,
að ég er : Definitely not nerdy, you are probably cool.

Probably hvað ?

Endilega takið prófið (tekur 2 mín) og póstið niðurstöðuna í comments.

16.8.07

Eldsneytishækkun !

Hef aðeins þetta um það að segja :

Djöfulsins drullupumpur !
Helvítis aftaníossa samráðs spassmasterar !
Endaþarmssjúgandi hórusynir !
Fokkans mergsjúgandi illa innrættu framapotara pungsleikjur !
Skíthæla no good for nothing fávitar !

Amen.

11.8.07

Þolinmæði ?

Bið ég dygga lesendur mína um að sýna mér þolinmæði þessa dagana vegna bloggleysis.
Þannig er að núna er millibilsástand á heimilinu vegna flutnings á barnaherbergi og skrifstofu, og er tölvan mín þess vegna ótengd við umheiminn.
Ég geri mér grein fyrir að þetta getur tekið á taugar bloggþyrstra lesenda minna en í almáttugs bænum verið sterkir !

8.8.07

Að vera eða ekki vera....tekinn í rassg**ið !

Fyrir mér er það ekki flókin spurning, nei takk ég ætla ekki að gerast áskrifandi að Sýn2 !
Það var auðvitað vitað mál um leið og það fréttist að 365 Viðurstyggðir væru búnar að trygga sér sýningarréttin á enska boltanum að peninga plokkið hæfist fyrir alvöru enda dugar ekki minna en 114 % hækkun á verðskrá til að covera fáránlegt yfirboð Viðurstyggðana á þessu gríðarvinsæla sjónvarpsefni !

Þetta er klárlega mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu jafnvel Alheimsins !

Ný forgjöf !

27,6

6.8.07

Bíó uppdate !

Þar sem ég get varla talist til öflugra "bloggara" þá langar mig til að bæta fyrir fjarvistir með því að setja hér inn lista yfir þær bíómyndir sem ég hef horft á síðan frá síðustu bíó færslu, reyndar er þetta ekki alveg tæmandi listi en þó nokkuð samt.
Einkunn er fyrir aftan ártalið.

Apocalypto (2006) 9



The Last King of Scotland (2006) 8




Music and Lyrics (2007) 7



Der Untergang (2004) 8




Prime (2005) 6




300 (2006) 8




Wild at Heart (1990) 8




Jesus Camp (2006) 8




Perfume: The Story of a Murderer (2006) 8




Ghost Rider (2007) 5




The Hitcher (2007) 3




The Illusionist (2006) 7




Training Day (2001) 7




Big Nothing (2006) 7




Thr3e (2006) 3




Corpse Bride (2005) 8




The Devil Wears Prada (2006) 5




Saw III (2006) 6




Deja Vu (2006) 7




Turistas (2006) 5




Stranger Than Fiction (2006) 8




16 Blocks (2006) 6




Desperation (2006) (TV) 5




Nacho Libre (2006) 6




Snakes on a Plane (2006) 6




Superman Returns (2006) 6




The Woods (2006) 5




The Prestige (2006) 7



Tenacious D in The Pick of Destiny (2006) 6

Eyktir ?

Hvað eru eyktir?

Eyktir voru notaðar fyrr á tíðum til að skipta sólarhringnum í átta hluta og er hver eykt 3 klst. að lengd.

Eyktirnar eru eftirfarandi:
Lágnætti = 00:00-02:59
Ótta = 03:00-05:59
Rismál = 06:00-08:59
Dagmál = 09:00-11:59
Miðdegi = 12:00-14:59
Nón = 15:00-17:59
Miðaftann = 18:00-20:59
Náttmál = 21:00-23:59
Athugið: Sumar eyktir hafa einnig önnur nöfn.

Já, þetta er gott að vita !

17.6.07

Vinna vinna vinna........

Jæja ég byrjaði að vinna á þriðjudag og hef eiginlega ekkert verið heima fyrr en nú.
Hjá þessu mikla scnilldar fyrirtæki sem ég vinn hjá eru allir verkstjórar farnir í frí á sama tíma þannig að ég er eini verkstjórinn í framleiðsludeildum og hef því haft miiiikið að gera á löngum dögum. Svona verður þetta næstu viku líka.
Ekkert getað spilað golf og stefnir í að árangur þessa árs verði svipaður eða verri en þess síðasta.
Gaman gaman!

Annars til lukku með daginn Íslendingar til sjávar og sveita : )

10.6.07

Veikindaf-árið mikla !

Ég er keppnis maður mikill í öllu, og núna er ég nokkuð viss um að vera orðinn a.m.k.
Þykkvabæjarmeistari og alveg örugglega nánast búinn að tryggja mér Móa meistara titilinn í veikindum........nei líklega ekki þykkvabæjarmeistari í ljósi þess að nokkrir sveitungar mínir hafa látist á árinu og teljast þess vegna betri í veikindum en ég.
Allavega er ég orðinn skrambi fær í veikindum !

Aðeins 3 vikum eftir rúmlega 4 vikna vírusveikindi og rúmlegu hef ég nú aftur lagst í bælið með hlaupa bólu og þá er ég ekki að tala um svona bólu sem sumir fá sem ætla að verða hlaupagikkir miklir en springa á trimminu á fyrstu vikunum og leggja 24.000 kr Nike skónum og spandex brækurnar á hilluna.
Neibbs, alvöru oldfasion hlaupabólu með gríðarlegum og viðbjóðslega djúsí útbrotum (hef ákveðið að setja ekki inn sjálfsmynd) og er búinn að liggja með mjög háan hita síðan á miðvikudag en þegar þetta er skrifað horfir til betri tíðar og með betri tíð kemur vonandi rakstur en vegna útbrota hef ég ekki getað rakað mig og er því kominn með viku brodda sem er alltof mikið fyrir minn smekk og hef reyndar ekki trú á að rakstur verði framkvæmanlegur á allra næstu dögum því ég á einfaldlega ekki nægan klósettpappír til að setja í blæðandi andlitssár.

Verð heima á morgun þar sem ég er ennþá með hita en sé svo til með þriðjudag.

28.5.07

Myndarí !

Þessir drykkir lögðu sitt að mörkum til að við M1 urðum svona glæsilegir eins og myndirnar hér fyrir neðan sýna : )




Háttvirktur M7 náði ekki núna frekar en vanalega að komast með okkur í bæinn, en ég fann tvífara hans við barinn.






Já fínasta kveld og þakka ég Móunum fyrir að vera svona skemmtilegir : )