5.9.07

Bíó : Shortbus (2006)


Ég ákvað að reyna að sjá sem flestar myndir sem voru til sýningar á kvikmyndahátíð Græna Ljósins, þessi mynd er ein af þeim.

Myndin fjallar um konu sem starfar sem pararáðgjafi og kynnist í starfinu hommapari sem kemur til hennar til að leita sér hjálpar.
Hún kynnist í gegnum hommana litlum klúbbi sem heitir Shortbus og er kynlífsklúbbur þar sem fólk af allskonar kynhneigð kemur saman til að blanda geði og líkamsvessum.

Myndin inniheldur mjög opinská kynlífsatriði, án þess þó að verða klámmynd, allt er einhvernvegin eðlilegra en það.

Ágætis mynd sem segir ágætis sögu og inniheldur frábæra tónlist.

Einkun. 7/10

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þúpa?

M4 sagði...

Fínasta mynd og vel leikin.
Alveg örugglega erfitt að leika í svona mynd.

p.s.
Kvitta fyrir með M'inu sínu takk : )