27.11.07

INNBROT !

Í morgun þegar ég ætlaði að leggja af stað til vinnu sá ég að vinnubíllinn minn var opinn og greinilegt var að það hafði öllu verið rótað út út hanskahólfinu í leit að einhverju eigulegu.
En þjófurinn fann ekkert sem höfðaði til hans nema þrjá óopnanaða poka af Extra tyggjói, kauði kaus að láta vera eðal kasettur sem ég hafði útbúið fyrir c.a. 20 árum með allskonar eðalefni þess tíma og svo var þarna líka kasetta með bestu lögum The Eagles sem fíflið hafði ekki áhuga á, fáviti.
Nokkuð vel sloppið verð ég að segja, engar skemmdir, Eagles kasettan á sínum stað og nú þarf ég bara að kaupa meira tyggjó og þá er allt í gúddí.

Núna ráfar sem sagt um göturnar einstaklingur sem státar af ferskum andardrætti og lélegum tónlistarsmekk : )

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Borg óttans?

Spurning um að sitja fyrir þessum andfúlu kvikindum með haglabyssuna útí glugga?

M2

Nafnlaus sagði...

En er hún betri en SPAWN?

M7

M4 sagði...

Nei, ekkert toppar Spawn !
Taktu lyfin þín.