28.8.08

Varðandi bögglasendingar.

Meira um bögglasendingar.

Pólskur starfsmaður hjá mér kom til mín með kvittun frá Íslandspósti, hann hafði um daginn póstlagt böggul sem innihélt gjöf til eiginkonunar í Póllandi (trúlega tvo hamra skrúfjárn og pakka af 4x30mm skrúfum), pakkinn hafði ekki skilað sér til konunar og hann vildi fá svör frá Íslandspósti og mína aðstoð við það, sem ég gerði.
En það er ekki málið, heldur að á kvittuninni frá Íslandspósti sá ég að pakki þessi viktaði aðeins eitt kíló en hann þurfti að borga hátt í 3000kr fyrir sendinguna, 3000kr!
Og pakka helvítið skilaði sér ekki einu sinni á áfangastað, enda kostar það örugglega extra.

3 ummæli:

M3 sagði...

1 lítið bréf frá mér til þín kostar nú bara litlar 80 kr!!!! og erum við nú í sama hverfi.

M3 sagði...

1 lítið bréf frá mér til þín kostar nú bara litlar 80 kr!!!! og erum við nú í sama hverfi.

Nafnlaus sagði...

Sem gerir 160 kr.

HEY... doublePóstar eru ekki liðnir hérna.... liðnir hérna !!!

kv. kv. R.Giggs