Næsta vor eru liðin 13 ár síðan að ég flutti af mölinni á malbikið. Það var heilmikil breyting á mínu lífi því í leiðinni varð ég algerlega sjálfstæður.
Ástæðan sem varð til þess að ég flutti loks til Reykjavíkur var sú að fyrirtækið sem ég vann hjá varð gjaldþrota og því var lokað, öllum sagt upp en örfáir fengu þó einhverskonar flutning á annan vinnustað. Hjá þessu fyrirtæki hafði ég unnið í tæp 5 ár. Þetta var algerlega frábær vinnustaður, góður mórall og frábærir samstarfsmenn og konur. Reyndar fattaði ég ekki almennilega hversu skemmtilegur vinnustaðurinn var fyrr en löngu seinna. Launin voru reyndar alltaf frekar léleg en dugðu þó fyrir því sem maður þurfti.
Félagi minn og síðar samstarfsmaður reddaði mér svo nýrri vinnu í bænum hjá byggingafyrirtæki sem ég hef nú unnið hjá í tæp 13 ár.
Þegar ég hóf vinnu hjá þessu fyrirtæki var ég fjórtándi starfsmaðurinn og er þá skrifstofan meðtalin. Fyrirtækið var nánast nýtt en stofnað með sameiningu tveggja eldri fyrirtækja sem gáfu upp öndina og voru á staðnum fyrrum starfsmenn þessara tveggja fyrirtækja.
Vinnuaðstaðan var ekki góð en með auknum umsvifum og peningaflæði var hægt að laga og betrumbæta, byggja við og endurnýja tæki og tól og er óhætt að segja að á þessum tæpu 13 árum hef ég séð gríðarlegar breytingar á mínum vinnustað.
Fyrstu árin var maður í öllu mögulegu en seinna meir varð sérhæfingin meiri.
Alveg skal ég játa það að ég ætlaði að hætta að vinna þarna fyrir nokkrum árum síðan, margskonar leiði var farinn að láta á sér kræla en aldrei lét ég samt verða af því.
Svo var það fyrir tæpum þremur árum að mér var boðið að verða verkstjóri í stórri deild fyrirtækisins og værum við þá tveir í þeirri deild enda mikil vinna framundan og of margir menn í þeirri deild til að einn verkstjóri gæti annað þeim verkum sem fyrir lágu. Ég þáði þetta starf og sé ekki eftir því. Ég hef öðlast dýrmæta reynslu í þessu starfi og lært heilmikið af samverkstjóra mínum sem hafði fyrir mikla reynslu.
Þegar mest var í minni deild voru 27 menn af mörgum þjóðernum sem var oft erfitt að eiga við og stjórna, en það hafðist og reynslan er meiri fyrir vikið.
Eins og allir hafa tekið eftir eru afleiðingar þenslu undanfarinna ára núna að skella á okkur með minkandi vinnu og háum vöxtum, ekki gott combo það, fjölda fólks hefur nú þegar verið sagt upp störfum um allt land og mjög mörg fyrirtæki ramba við brún gjaldþrots, fleiri en fólk gerir sér almennt grein fyrir.
Og þannig er það nú líka að þegar eitt fyritæki á ekki fyrir skuldunum sínum hefur það áhrif á önnur sem eru í viðskiptum við það, keðjuverkunin verður óviðráðanleg og fyrr en varir er vinnuveitandi manns kominn í bullandi vandræði.
Og þá kom loksins að því að mér var tilkynnt á fimmtudag að mér yrði sagt upp störfum frá og með næstu mánaðarmótum. Ég get ekki sagt að þetta hafi komið mér á óvart enda ekki þörf á jafnmörgum verkstjórum í dag eins og vinnan hefur minnkað og starfsmönnum fækkað þó ég neiti því auðvitað ekki að þetta er óþægilegt eftir allan þennan tíma.
Ég þáði þó gott boð um að fá að hætta strax og halda launum í þá þrjá mánuði sem uppsagnarfresturinn er.
Og þannig er nú staðan í dag, ég er hættur að vinna og byrja því fljótlega að leita mér að nýrri vinnu og á meðan ætla ég að stytta dagvist barnanna og vera meira með þeim.
Á mánudag fer ég á "gamla" vinnustaðinn til að skila af mér símanum og til að taka það sem er mitt og til að kveðja mannskapinn.
Svona að endingu vil ég taka það fram að af upprunalega mannskapnum frá því ég byrjaði eru eftir 4.
Síðast þegar ég missti vinnuna varð það til einskins nema góðs og eins er ég viss um að svo verður líka í þetta skiptið.
6 ummæli:
Æi leitt að heyra, en eins og þú segir sjálfur þá vonum við bara að þú finnir eitthvað betra og spennandi.
Ömurlegt að heyra :( En eins og þú sagðir þá eru kaflaskipti og spurning um að nýta þetta bara sem tækifæri :) Tækifæri til að takast á við nýja hluti.
Var að skoða sumarmyndir af ykkur... frábær mynd af stærsta barninu að vega salt..
kv frá KB35
Kristín
Já svona er þetta stundum.
En takk fyrir, það sannast á þessari mynd að "stór börn" geta verið krútt : )
þegar einar dyr lokast opnast aðrar þetta verður bara tækifæri til að skoða naflakusk í smá tíma og þetta verður bara til góðs kagglinn 2 vikur til stefnu:)
Þú segir fréttir kallinn minn!
Fúlt að lenda í þessu.
Eins og þú segir þá er þessi branzi í skít þessa dagana.
Ég efast ekki um að þetta á eftir að vera til góðs, enda mikið spunnið í kartöflustrákinn.
Nú er lag að taka næsta skref!
Go M4!
Já leiðinlegt að heyra. Þú gætir kannski gerst atvinnugolfari ;-)
kv. R.Giggs
Skrifa ummæli