26.8.08

Læt ekki mitt eftir liggja í baráttunni!

Ég hef, af áeggjan Dr. Gunna ritað Herra Árna M. Matthísen eftirfarandi tölvuskeyti:

Góðan dag.
Ég legg hér með mitt lóð á vogarskálarnar í sambandi við tillögu sem umboðsmaður neytenda kom með í sambandi við að leggja niður virðisaukaskatt og toll af litlum póstsendingum frá útlöndum. Þá yrði ódýrara að kaupa bækur og geisladiska (og fleira) frá útlöndum, og ekki veitir af.

Koma svo Árni minn, þú getur þetta.

Kær kveðja.
Yðar einlægur M4.

Alveg er ég viss um að með þessu hef ég gert góðverk hið mesta.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

M4?!

Hoppaðu uppí rassgatið á þér!!

Virðingarfyllst,
Árni

Nafnlaus sagði...

ÞETTA SAGÐI ÉG..... hann ræður ekki við þetta einfalda verkefni blessaður dýralæknirinn Árni DoLittle.....

Kv. R.Giggs

M2 sagði...

Já láttu hann heyra það M4 ;)