Jamm, maðurinn sem elskar að tala um sjálfan sig, hefur skoðanir á öllu og þrífst á að koma þeim á framfæri.
Sá hinn sami og er búinn að gefa út sömu plötuna fjórum sinnum en fær samt fullt hús af stjörnum hvar sem hann er "gagnrýndur" enda má ekki segja neitt neikvætt um kónginn, fyrrum málsvari verkafólksins og hatursmaður kerfinsins sem seldi sál sína eftirminnilega til Visa fyrir c.a.15 árum síðan og hefur síðan ekið um á margmilljónajeppum, giftist um daginn fyrrverandi fegurðardrollu og flutti í villu í Kjós er kominn hringinn í sjálfhverfu sinni.
Skál fyrir Bubba sem ætlar að leika sjálfan sig á sviði Borgarleikhússins í haust.
2 ummæli:
Hvað segir dr.Gunni: "Áhugamál Bubbar nr: 1. 2 og 3 er Bubbi sjáflur" og "sem á jeppa og trophywife upp í sveit" og "Bubbi gerir EKKERT nema hann hagnist sjálfur á því. Það er hans vandamál." Þannig að það er jafn sjálfsagt að Buggi leiki Bubba og tunglið gangi kring um jörðina. Hvað segir orðabók menningarsjóðs um sjálfshverfu: Sjá: Bubba
kv. R.Giggs....... já ég sjálfur ;-)
Það reyna fáir að mótmæla þessu, enda varla hægt.
Skrifa ummæli