14.8.08

Spámaðurinn frá Þykkvabæ snýr aftur!

Þá er komið að því að Enski boltinn byrji að rúlla aftur eftir sumarfrí og auðvitað hef ég alveg á hreinu hvurnig lokastaðan í Maí 2009 mun líta út.

Ég ætla ekki að standa í þvi að rökstyðja þessa niðurröðun enda á ég ekki að þurfa þess, árangur minn í þessum málum talar sínu máli og ljóst má þykja að það er hægt að treysta á þessa "spá".
Ekki ætla ég heldur að eyða tíma í að pæla í liðunum sem hanga um miðja deild, vinna ekkert og falla ekki.
En svona mun staða sex efstu liða verða, og þau 3 sem falla fá að fljóta með.

1. Chelsea
2. Man Utd
3. Liverpool
4. Arsenal
5. Tottenham
6. Everton
-----------
18. Bolton
19. Stoke City
20. Hull City

Og þannig er nú það.

Einnig hef ég hugsað mér að setja inn færslur á föstudögum þar sem fram komi úrslit komandi helgar þeim til hægðar auka sem eru að tippa og lengja, svona er maður nú góðhjartaður.

3 ummæli:

M2 sagði...

... og ástæða þess að þú hefur ekki efnast neitt á þessari náðargáfu þinni er væntanlega sú að "trúfélag þitt bannar fjárhættuspil"? ;þ

Terelellelelelelelelley!

M4 sagði...

Akkúrat : )

Nafnlaus sagði...

ha ha haa haaa haaaaa hhaaaaah hhhhhaaa ahaaaaaah aaaa hhhhhhhaaaa .... uuumm.. já, aaaaahhhHHAA.

Spyrjum að leikslokum ;-)

kv. R.Giggs