31.8.08

Nú árið er liðið.

Eitt ár er nú liðið síðan ég setti upp teljara hér á blogginu mínu.
Eitthvað virðast innlitunum fjölga eftir því sem á líður því að um áramót voru talin c.a.1000 innlit en þegar þetta er skrifað er talan kominn í 3736.
122 dagar sem taldir voru 2007 gerðu rúmlega 8 innlit á dag, og ég skrifaði 95 pósta á þessu tímabili.
244 dagar sem taldir voru 2008 gerðu rúmlega 11 innlit á dag,og ég skrifaði 252 pósta á þessu tímabili.

Þetta er nú ágætis aðsókn held ég miðað við að ég hef alls ekki verið að láta marga vita af þessu brölti mínu, gaman væri að sjá hvað gerðist ef ég setti slóð á Facebook-ið mitt.
Held ekki samt.

3 ummæli:

M2 sagði...

Ekki gleyma aðal málinu.

Gæði lesanda á þessum vef er verulega yfir meðallagi!

;)

M4 sagði...

Nákvæmlega : )

Nafnlaus sagði...

Þú gætir deilt í þetta með tveimur, með tveimur. Allir tvöföldu póstarnir mínir. Kýki alltaf tvisvar á dag, á dag.

kv. R.Giggs