20.12.05

NFS

Í annars sorglegri frétt í aðalfréttatíma NFS um daginn tókst mér að hlæja pínulítið, þannig var að fréttaþulur var að segja frá því að rannsókn á sjóslysinu við Viðey þar sem hjón fórust, hafi skipstjórinn verið drukkinn !
Þetta er ömurlegt að heyra og sorglegt mjög, en það sem kitlaði mig var að einnig leiddi rannsóknin í ljós að báturinn hafi verið á 17 snúninga hraða þegar að henn steytti á skerinu með þessum hörmulegu afleiðingum.
Ég hef verið á sjó og ég veit fyrir víst að siglingahraði er ekki mældur í snúningum heldur mílum !
Þulurinn hefur líklega verið að hugsa um þvottavélina sína meðan hann las fréttina !


Satan.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ert´að grínast!!! haha kjáninn sá arna...hahaha!!!

Nafnlaus sagði...

Helena

Nafnlaus sagði...

Pour shame!

Grandpa Simpson