13.12.05

Layer Cake


Layer Cake skartar hinum nýja James Bond, leikaranum Daniel Craig og í aðal hjá konunum er Sienna Miller sem er eiginlega betur þekkt fyrir að vera sú sem Jude Law kramdi hjartað í, en það hefur vakið svo mikla athygli að Sienna er að verða gríðarlega eftirsótt leikkona fyrir vikið......tja og svo er hún líka annsi flott !
Hvað um það, myndin fjallar um mann sem er búinn að vera í glæpabrannsanum í einhvern tíma og hefur þénað vel á því en vill hætta, en flækist svo í helvítis leiðindi.
Myndin mynnir svolítið á Lock, Stock And Two Smoking Barrels, en er ekki eins hrá.
Ágætis mynd.

Einkunn. 7/10


Satan.

Engin ummæli: