Þar sem þessu fyrsta (heila) ári mínu sem bloggari er að ljúka (byrjaði í maí 2004) þá finnst mér við hæfi að koma hér með uppgjör á því sem hæst stendur varðandi tónlist og bíómyndir á árinu.
Þess má svo geta að þessi póstur ku vera númer 242 sem ég skrifa á árinu.
Til að allt sé nú rétt í sambandi við músíkina þá finnst mér réttast að fara eftir ITunes varðandi mest spiluðu lögin á árinu hjá mér, annars myndi ég vafalaust freistast til að nefna einhvar lög sem eru "betri" en þau sem ég raunverulega hef hlustað mest á.
Vélarbilun olli því að spilunartalning núllaðist eftir að nokkrir mánuðir voru liðnir af árinu og því er líklegt að listinn hefði verið eitthvað öðruvísi ef að það hefði ekki gerst, t.d. hefði Damien Rice eflaust verið hátt á lista.
En hvað um það, hér er listinn yfir mest spiluðu lög ársins s.k.v. ITunes :
1. Glósóli - Sigur Rós
2. For Today I'm A Boy - Antony & The Johnsons
3. Geislinn í vatninu - Hjálmar
4. Ooh la la - Goldfrapp
5. I Will Follow You into the Dark - Death Cab For Cutie
6. Youll Never Walk Alone - G4
7. Talking to you - Denmark - Jakob Sveistrup
8. Nine Million Bicycles - Katie Melua
9. Hún - Skítamórall
10. How Do You Like Iceland? - Baggalútur
Og þannig er nú það, Sigur Rós malaði þetta þrátt fyrir að gefa ekki út plötuna "Takk" fyrr en seint á árinu.
En hvaða bíómyndir skoruðu bezt á árinu ?
A.t.h. einhverjar af þessum myndum komu út árið 2004 en ég sá þær ekki fyrr en á þessu ári.
1. Sin City
2. Million Dollar Baby
3. Sideways
4. Diarios de motocicleta
5. Hotel Rwanda
6. Broken Flowers
7. The Descent
8. The Incredibles
9. Batman Begins
10. The 40 Year Old Virgin
Þess ber að geta að myndir 1-8 skoruðu allar það sama, eða 8/10
1 ummæli:
Ég verð að vera sammála allri þessari snilld verkstjóri
M7
Skrifa ummæli