

Ég get ekki neitað því að mig langar í stærri bíl, kannski ekki mjög sniðugt vegna bensínkostnaðar ég veit, en stundum verður maður bara að vera svolítið góður við sig.
Ég var svolítið spenntur fyrir módelinu sem er nú í afgreiðslu, en því miður er sá bíll bara of lítill þó svo að hann sé mjög skemmtilegur að öllu öðru leiti t.d eiga mamma og pabbi splunkunýjan RAV4 og hann er bara flottur.
En nú er að koma ný týpa á nýja árinu 2006 og mér finnst hann vera nokkuð svalur og svo er hann stærri og lengri einum 35 cm lengri, og allir vita að það er lengdin skiftir máli : )
Bíllin verður fáanlegur í hinum ímsustu útgáfum þó svo að öruggt sé að þær muni ekki allar fást í umboðinu hér.
Vélastrærð verður frá :
2.4-liter, I4, 166 hestöfl og upp í 3.5-liter, V6, 269 hestöfl
Svo verður fróðlegt að sjá verðlistann.
Ég er bara að verða nokkuð spenntur !
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli