11.12.05

Antony And The Johnsons


Ég fór ásamt öllum mínum nánustu vinum á tónleika í fríkirkjunni í gærkveld með Antony And The Johnsons.
Þessir tónleikar voru algerlega frábærir og munu lengi lifa í minningunni, hljómburðurinn í fríkirkjunni var alveg frábær og líka stemningin sem var mjög afslöppuð og þægileg.
Antony virtist líka mjög vel að spila þarna og sagðist vera búinn að vera að bíða eftir að geta spilað þessa tónleika á þessum stað, og það fannst vel á flutningi hans og sveitarinnar sem með honum var.
Áhorfendur voru vel með á nótunum og fögnuðu vel og lengi í uppklappinu og líka að tónleikunum loknum enda fengu tónleikagestir að taka þátt í næstsíðasta lagi tónleikana með því að tvítóna með söng á völdum stöðum í laginu með alveg ótrúlega miklum áhrifum og var ekki laust við að maður fengi gæsahúð í hvert skipti sem að áhorfendur tónuðu með laginu.

Sem sagt, öruggt er að þeir sem voru á þessum tónleikum upplifðu eitthvað einstakt sem seint mun gleymast.
Húrra fyrir Tony !


Satan.

Engin ummæli: