23.12.05

Raðmorðingjar óskast

Ein af mest seldu skáldsögunum fyrir jólin er bókin Afturelding eftir einhvern gaur.
Bókin sú fjallar um raðmorðingja sem einblínir á að stúta gæsaskyttum, sem er auðvitað hið besta mál þó svo að rjúpna skyttur fari meira í taugarnar á mér persónulega.
En hvernig stendur á því að íslendingar eigi engan almennilegan raðmorðingja ?
Ég tel ekki með einhverja torfkofakalla síðan árið 1153 þegar það að höggva mann og annan þótti vera hinn eðlilegasti hlutur.
Svo er alltaf verið að tala um að íslendingar séu svo nýungagjarnir og þurfi alltaf að vera að apa eftir stærri og merkilegri þjóðum, en engum hefur dottið í hug að gerast raðmorðingi !
Hversu mikil snilld væri það nú ef að einhver tæki upp á því að stúta karlmönnum yfir 30 ára sem eru of þungir og eiga það svo aukalega sameiginlegt að vera úr sveit.......andskoti yrði það spennandi.......ég færi varla útúr húsi af hræðslu !
Svo í ljósi þess að löggan stæði ráðþrota í leit sinni að morðingjanum þá væri maður með hland fyrir hjartanu og kúkinn í buxunum af hræðslu mánuðum saman !

Það vantar eitthvað svona á klakann !


Satan.

Engin ummæli: