
Þessi mynd er besta hryllings mynd sem ég hef séð í laaaangan tíma.
Hún fjallar um hóp vinkvenna sem fara í hella skoðunarferð og lenda í frekar óvæntum skít.
Ég veit svo sem ekki hvað meira ég ætti að segja um þessa mynd, nema það að ég gerði mér vonir um að hún væri góð og hún reyndist betri en ég vonaði.
Í aðal er engin fræg, nema að ef að þú hefur séð hina stórgóðu mynd The Magdalene Sisters (2002), þá kannastu við eina leikkonuna.
Leikstjórinn er ungur og ekkert sérstaklega frægur, það merkilegasta hingað til er myndin Dog Soldiers (2002) sem er varúlfa horror.
Einkunn 8/10
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli