20.12.05

DOOM


Þessi mynd er gerð eftir hinum gríðarvinsæla samnefnda tölvuleik.
En eins og oftast er þegar að mynd er gerð eftir tölvuleik þá er myndin frekar misheppnuð !
Í nútíma kvikmyndagerð þekkjast ekki lengur lélegar kvikmyndabrellur og þær eru það eina sem er eitthvað gaman að hér.
Í aðal er The Rock ( heitir reyndar Dwayne Douglas Johnson) og hann er auðvitað ekki merkilegur leikari enda er þess sjaldnast krafist í svona myndum.
Já svo verð ég að taka fram að myndin náði sínum lægsta punkti í svona gamaldags "mano a mano" slagsmála atriði, eitthvað sem maður hefur ekki sésð í myndum í mörg ár....tja....nema þegar er verið að gera grín að svoleiðis atriðum.

Einkunn. 4/10

Satan.

Engin ummæli: