17.12.05

Alfie


Alfie er endurgerð samnefndar myndar síðar 1966 þá með Michael Caine í aðal.
Í þessari fer Jude Law með aðal og í öðrum stórum rullum eru : Sienna Miller, Nia Long, Omar Epps, Marisa Tomei og Jane Krakowski.
Myndin fjallar um kvennabósan Alfie sem er með allt á hreinu í sambandi við kvennsunar og nýtur lífsins til fullnustu vaðandi frá einni gellunni til annarar.
En svo gerist eitthvað.
Ég skemmti mér alveg ágætlega yfir þessari mynd þó að hún sé ekki svona ha ha ha fyndinn þá er hún full af skemmtilegum pælingum.
Í fyrstu fannst mér svolítið skrítið að Alfie er alltaf að tala við áhorfandann þar sem hann er að útskýra hitt og þetta sem er að gerast hjá honum og hvað hann er yfir höfuð að pæla.
Mér finnst Jude Law skemmtilegur leikari og í þessu hlutverki er hann heima hjá sér, svo er líka áhugavert að hann kynntist við gerð þessarar myndar Siennu Miller, en eins og ég hef áður talað um eru þau í aðal í mestu ástarmála sápu þessa árs.....tja...ásamt jennifer Aniston og Brad Pitt og Angelínu Jólí.

Einkunn, slefar í 7/10


Satan.

1 ummæli:

M4 sagði...

Ég er það : )