
Ég fór í gær og verzlaði nýju plötuna með Sigur Rós " takk" og hef verið að láta hana rúlla.
Ég verð að segja að hún er helvíti fín þó svo að það sé ekkert eitt lag sem neglir mig betur en annað ennþá, og verður það líklega að teljast kostur. Það er heldur ekkert lag sem fer í taugarnar á mér sem er líka gott, og er þess vegna þessi diskur í heildina hinn bezti.
Einnig verður platan betri við hverja hlustun og það er alltaf gaman þegar að svo er.
Ég hvet mína dyggu lesendur að skella sér í nærztu hljómplötu verzlun og fá sé eins og eitt stykki og annað handa systkyni eða frænda eða frænku, þú mátt ráða.
Satan.
3 ummæli:
audda !
? waz
aha...he he he
Skrifa ummæli