Ljótleiki minn hefur náð nýjum hæðum í dag.
Það getur ekki verið, veit ég að þú ert að spyrja þig !
Jú jú það vill nefnilega þannig til að ég fékk að prufa rosa fína rafmagns rakvél á fimmtudaginn síðasta hjá náskyldum ættingja.
Ekki gekk raksturinn neitt svakalega vel enda hef ég ennþá ekki prufað rafmagns rakvél sem gerir gagn.
En til að koma mér að efninu þá var "afraksturinn" skeggrótar sýking sem lýsir sér þannig að það grefur núna í nánast öllum skeggrótunum á fésinu, frá neðstu rót nánast við bringu og upp að nefi og augum !
Svo er ég búinn að uppgötva að það er eitill sem er á milli höku og barka sem núna er stokkbólginn vegna sýkingarinnar.
Ekki þarf að taka fram að þetta er helvíti óþægilegt svo að ekki sé nú minnst á viðbjóðslegt á að horfa !
Ég er sem sagt byrjaður á Penecillin kúr og ætti að verða góður eftir nokkra daga.
Ráð mitt til ykkar sem notið rakvélar :
EKKI láta aðra nota ykkar rakvélar og raksköfur nema að sótthreinsa vel á milli !
Að lokum vil ég segja að mér datt í hug að það gæti verið gaman að láta mynd að óhugnaðinum fylgja þessum pósti og því tók ég á mína myndavél mynd " extreme close upp" eeeen ég hætti við þegar að ég skoðaði myndina, og hlífi ykkur því við því.
Aint life a kick in the balls !
Satan.
1 ummæli:
Jebbs, þetta er hrikalegt !
Skrifa ummæli