
Andskotinn hafi það ég færi ekki í flugvél þó að ég fengi gefins miða út fyrir landssteinana !
Er það tilviljun að það hafa farist 6 stórar farþegaflugvélar á rúmum mánuði ?
Nei ég held ekki !
Og núna voru Iceland Air að hækka miðaverð um 3 % og það er ekki útaf hækkandi benzín verði heldur hafa trygginga iðgjöld hækkar mikið að undanförnu, humm...af hverju ætli að það sé ?
En hvað er í gangi ?
Ég skal segja ykkur hvað er að gerast, sko, heimurinn er að fara til fjandans !
Sjáið bara hvað gerðist í Súmötru á jóladag síðasta og svo aftur á páskadag ! Tilviljun.....NEI !
Svo eru það allar þessar flugvélar sem geta bara ómögulega hangið í loftinu og samanlagt hafa hátt í þúsund manns drepist í þessum flugslysum !
Og svo núna í New Orleans þessi fellibylur sem sendi íbúana aftur í miðaldir, þar sem fólk sem safnast hefur saman í íþrótta mannvirkjum er rænt, nauðgað og myrt og ekki endilega í þessari röð !
Og í Kína hafa mannskaða flóð drepið helling af fólki, en við heyrum bara ekki eins mikið af því eins og ástandinu í New Orleans, vegna þess að flestir finna meira til með kananum góða en einhverjum kommúnista aumingjum !
Þetta er bara rétt að byrja, trúið mér og það er bara eitt sem maður getur gert í stöðunni og það er að ganga til liðs við Vottana !
Þar er maður óhultur gagnvart allrahanda veseni og á vísan stað í paradís !
Halleljúga og megi mátturinn vera með okkur öllum !
Satan.
1 ummæli:
Jahá, þetta er ath.verð lesning.
Ég þarf greinilega að skoða hjartað mitt aðeins betur.
Skrifa ummæli