Ég var með Ísland í bítið í gangi í morgun og sá þar í fréttatímanum myndir frá því þegar að síðustu Ísra-elsku hermennirnir eru að fara frá Gaza, og eru þá Palestínu menn þar allsráðandi.
Palestínumenn voru að vonum Gaza-lega glaðir og fretuðu úr hríðskota byssum sínum upp í loft til að undirstrika hamingju sína.
Þá gat ég ekki annað en hugsað, skyldu þeir ekki gera sér grein fyrir að kúlurnar koma niður aftur ?
Hvurzlags helvítis ábyrgðarleysi er þetta eiginlega, það getur ekki verið notalegt að fá kúlurnar í kollinn eftir að hafa farið þetta 100-200 metra upp í loft !
Það ætti kannski að sýna þessum andskotum hvað gerist hér á landi um áramótin þegar að rakettuprikum og drasli rignir yfir okkur.
Eða bara að spila fyrir þá öll lög sem Tom Petty hefur gert því að í öllum hans textum kemur fyrir setningin :
what goes up , must come down.
Svona er nú Petty klár.
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli