
Þessi mynd á að gerast löngu áður en fyrsta Exorsist myndin og fjallar um séra Merrin leikinn af Stellan Skarsgard í þessari en í fyrstu Exorsist myndinni var það hinn frábæri Max Von Sydow sem lék hlutverk prestsins aldraða sem barðist við að særa út skrattan svo eftirminnilega.
Þessi mynd byrjar mjög vel og er nokkuð spennandi framan af en verður svo eitthvað slappari undir rest.
Einkunn 6/10
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli