23.9.05

Bolton

Ég verð að játa að ég hef haft fordóma gagnvart Michael Bolton í þó nokkur ár eftir að hafa verið einlægur aðdáandi á nokkura ára tímabili um 1990. Svo þegar að ég og mín kona byrjuðum saman árið 2001 kom í ljós þegar að hún flutti inn til mím að hún átti diska með M.Bolton eins og ég, og við vorum sammála um að þessir diskar væru bezt grafnir og gleymdir.
Í sumar kom það svo í fréttum að M.B. væri væntanlegur hingað til tónleikahalds með haustinu og ég gerði grín að því hér á þessu bloggi mínu, svo gerist eitthvað hjá manni, það koma í spilun lög með honum bæði gömul og ný og umræða um hann er mikil. Ég skal alveg játa það að ég ætlaði aldrei að fara á þessa tónleika, en eftir að hafa séð viðtal við kappann í sjónvarpinu þar sem hann var fyndinn og skemmtilegur, og gerði jafnvel grín að sjálfum sér þá breyttist álit mitt á honum.
Það var þá sem að við skötuhjú ákváðum að skella okkur fyrzt að það voru til miðar.
Og í stuttu máli sagt þá voru þetta alveg frábærir tónleikar og sannaði kallinn fyrir mér að hann er stór söngvari og mikill listamaður sem átti áhorfendur með húð og hári. Hann var fyndinn og frumlegur í senn, og svo kom lagavalið mér á óvart líka þar sem hann tók nokkur klassísk lög eins og t.d. O mio babbino caro eftir Puccini og Nessun dorma úr óperunni Turandot eftir Puccini. Svo tók kallinn auðvitað líka lögin sín í mjög skemmtilegum útfærzlum eins og Georgia on my mind sem hann söng með kór eingöngu og var það alveg frábært.
Sem sagt öllum að óvörum (aðallega mér) fórum við skötuhjú á tónleika með M.B. og sjáum ekki eftir því því að þetta voru frábærir tónleikar og kallinn náði algerlega að snúa áliti mínu á sér til betri vegar.
Alltaf gaman þegar að það gerist.


Satan.

4 ummæli:

M3 sagði...

jahérna....oft bregðast krosstré sem önnur tré!!!
Hentir þú naríunum í kallinn???

M4 sagði...

Þetta er náttla mikið verra en að fara að sjá grénjandi klæðskipting í KIRKJU !!!!!!

Nafnlaus sagði...

"Comment Deleted"
"This post has been removed by the author."

er einhver ritskoðun í gangi?

M7

M4 sagði...

Ekki af minni hálfu !