27.9.05

Broken Flowers


Við skötuhjú fórum í bíó á sunnudagskveld að sjá þessa mynd eftir Jim Jarmusch (coffie and cigarettes).
Bill Murray er í aðal og er eins og vanalega frábær, hann er hér í ekkert ósvipuðu hlutverki og í myndinni Lost in Translation.
Hann leikur mann sem hefur alla sína tíð verið kvennabósi og lifir góðu og þægilegu lífi eftir að hafa orðið vel efnaður á tölvu bransanum. Dag einn fær hann svo nafnlaust bréf þar sem honum er sagt að hann eigi 19 ára gamlan son.
Þá neyðist hann til að fara að rifja upp gamlar kærustur á road trippi sem hann fer í með mörgum vandræðalegum augnablikum og fyndnum.
Þræl fín mynd og fær 8/10


Satan.

Engin ummæli: