
Hér á landi er staddur gaur sem ég veit ekki hvað heitir en hefur það að atvinnu að herma eftir Prince (áður þekktur sem merki). Nema hvað þá kom þessi gaur fram í ísland í dag á stöð 2 í gær og ég á ekki orð að lýsa tilfinningunum sem helltust yfir mig, það var einhverskonar blanda af ógeði, örvæntingu og vorkunn !
Gaurinn er álíka líkur Prince (áður þekktur sem merki) og William Hung er líkur Ricky Martin !
Svo eru með fíflinu blásarar og bakradda lið og hljómsveit........eins og hann væri eitthvað merkilegur !
Ég mana þig að fara á visir.is og þar á veftíví og skoða ísland í dag þáttinn og líta viðurstyggðina augum, en á fastandi maga samt, nú eða bara fara og berja fíflið augum (eða berja hann bara) á Gauk á stöng þar sem hann verður með tvenna tónleika um helgina.
Satan.
1 ummæli:
he he he......
Skrifa ummæli