
Kúbverski tónlistarmaðurinn Ibrahim Ferrer lést á sjúkrahúsi í Havana í dag, 78 ára að aldri.
Ferrer fæddist 20. febrúar 1927 í bænum Santiago á Kúbu en móðir hans fékk óvænt hríðir þar sem hún var stödd á dansleik. Hann hóf að syngja með hljómsveitum í Santiago þegar hann var 14 ára og á sjötta áratugnum var hann orðinn þekktur söngvari. Árið 1959 flutti Ferrer til Havana og söng þar með hljómsveit Pacho Alonso í tvo áratugi. Á níunda áratugnum settist Ferrer í helgan stein. Hann drýgði eftirlaunin m.a. með því að bursta skó fyrir fólk en hóf síðan aftur að syngja með Buena Vista Social Club.
Ferrer kom m.a. fram á tónleikum hér á landi árið 2001.
Óhætt er að segja að Ferrer hafi verið einstakur söngvari sem af geislaði hlýja og töfrar.
Hans verður saknað.
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli