Í gær fórum við Móar ásamt tveimur vinum á Kálfatjarnarvöll í Vatnsleysu til að spila golf.
Það er varla orðum aukið að segja að það hafi verið hvasst en stæðilegust menn blöktu sem píslir væru, það var þó sæmilega hlýtt þannig að enginn króknaði. Spilaðar voru 18 holur á þessum 9 holu velli en ekki verður farið út í skor hér, þar sem enginn okkar var að gera neitt af viti.
En þessi ferð var vel heppnuð enda er ekki við öðru að búast þegar að þessi hópur gerir eitthvað saman.
Eftir leik skiptust leiðir en naglarnir fóru þó heim til M5 og þar stóð til að grilla og skella í sig og efast ég ekki um að það hefur allt farið vel fram, og eins er ég viss um að einhverjir naglanna eru ryðgaðir í dag !
Takk fyrir mig.
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli