29.8.05

Secret Window


Þessi mynd er gerð eftir sögu Stephen King og fjallar um rithöfund sem lendir í skrítnum skít.
Myndinni leikstýrir David Koepp sem hefur aðallega verið í því að skrifa handrit að bíómyndum, a.t.h. hann semur ekki sögurnar heldur skrifar þær upp þannig að þær hennti betur bíó forminu.
T.d. skrifaði hann handrit af:
Jurassic Park (1993), Carlito's Way (1993), Mission: Impossible (1996), Stir of Echoes (1999), Spider-Man (2002), War of the Worlds (2005).
Allt myndir sem slógu í gegn.
Í Secret Window fer Johnny Depp með aðal og svo er hinn stórgóði John Turturro með stóra rullu.
En myndin er bara svona meðal góð, eins og oft vill verða með myndir gerðar eftir Stephen King.

Einkunn 6/10


Satan.

Engin ummæli: