14.8.05

Íslenskur bachelor


Ég hef heyrt að það gangi frekar illa að fá karlmenn til að skrá sig í leit Skjás eins að hinum íslenska bachelor, að minnsta kosti einhverja alvöru gaura. Er það bara ég eða hefur einhverjum að mínum dyggu lesendum dottið M7 í hug sem hinn fullkomni "brúðgumi" ? Pælum aðeins í þessu, M7 er gríðarmörgum kostum búinn, hann er skemmtilegur og fríður, traustur og í góðri og vel launaðri vinnu, á flottan bíl og býr í flottu húsi, er barnlaus og á ekkert misheppnað hjónaband að baki, á góðan og traustan vinahóp sem myndi sóma sér vel sem aðstoðarkarakterar í þessum vinsæla sjónvarpsþætti !
Þetta er nú eiginlega svo skothelt að ef M7 skráir sig ekki til leiks þá mun ég gera það fyrir hann !


Satan.

1 ummæli: