2.8.05

Politik



Já pólitíkusinn ég ætla aðeins að tjá mig um borgarstjóraefni sjálfstæðissmjörkúkaflokksins.
Ég er á því að það sé hollt fyrir alla íslendinga að skipta reglulega út þeim sem stjórna öllu í landinu, sjáiði bara Davíð og Halldór sem eru svo örþreyttir og hugmyndasnauðir að mér liggur barasta við gráti. Þeir eru orðnir svo gegnsýrðir að spillingu að þeir vita ekki mun á réttu og röngu. Er tildæmis ekki ótrúlega magnað að Esso skyldi hafa gefið Framsóknarflokknum sína gömlu höfuðstöðvar, ekkert dúbíus við það ?
Núna er svo verið að kanna hver er vinsælasti smjörkúkurinn með borgarstjóra stólinn í huga, og svona er staðan í dag :
Gísli Marteinn Baldursson 36,9%
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 29,7%
Guðlaugur Þór Þórðarson 13,4%
Hanna Birna Kristjánsdóttir 12,7%
Júlíus Vífill Ingvarsson 7,2%.

Já, sjálfstæðissmjörkúkaflokkurinn ætlar svo sannarlega að gera Rauðsokkubandalaginu auðvelt að halda borginni !
Sá vinsælasti er flissandi strengjabrúða og júróvision fanatic og sá sem kemur þar á eftir er ólíklegur til að lifa fram að næstu kosningum !
Ég nenni svo ekki að tala um núner 3 !

Til hamingju Rauðsokkubandalagsmussur, borgin er ykkar !


Satan.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já og velkominn aftur

M7