
Ég fékk í jólagjöf frá konunni prýðisgóðan Go golfpoka sem hefur reynst mér vel, tja nema hvað að hann tók uppá því að bila pínulítið á þann hátt að plast eitt sem heldur löppunum frá því að leka of langt frá pokanum tók uppá því að brotna einmitt með þeim afleiðingum að þegar að maður lagði pokan frá sér þá lak hann niður í jörðina, sem er ekki gott þegar að um standpoka er um að ræða. Nema hvað að ég fór með pokann í Golfbúðina í Hafnarfirði þar sem hann var keyptur og spurði afgreiðslumanninn um hvort að það væri hægt að laga þetta, hann svaraði því svo að það gæti svo sem vel verið hægt en að hann vildi mikið frekar láta mig fá nýjan poka. Ég var að sjálfsögðu mjög sáttur með það og þegar að hann kom með poka sem að hann taldi að væri eins sá ég að þar var um að ræða stærri og sniðugri poka t.d með vasa fyrir gsm og annan vasa ætlaðan fyrir sólgleraugu, þar sem ég er heiðarlegur andskoti benti ég honum á að þessi nýji væri nú svolítið gerðarlegri og spurði hvort að mikill verðmunur væri á milli þess gamla og nýja, þá bauð hann mér að fá þennan nýja fyrir 1000 krónur sem að ég þakkaði pent fyrir.
Þetta kallar maður góða þjónustu og er ég viss um að ekki allar golf verzlanir hér í bæ hefðu höndlað málið svona heldur bent mér á að ég hlyti að hafa misboðið pokanum á einhvern hátt.
Þannig að mér er það bæði ljúft og skylt að mæla með þessari búð og þessari þjónustu sem þarna er veitt !
Góðar stundir.
Satan.
4 ummæli:
er ekki bannað að vera með gsm síma og sólgleraugu á golfvellinum
:-)
M7
Ekki þegar að maður er Móa meistari !
That´s the spirit !
Ahh meistari........
Skrifa ummæli