Ég fór ásamt M1 og M2 á Kálfatjarnarvöll í gær í frábæru veðri, völlurinn var fínn ef frá er talið eitt green sem er enn í vetrarham.
Spilamennskan var eins og við er að búast og eins og vanalega voru sem betur fer nægjanlega margir ljósir punktar til að halda áfram, púttin voru þó helsta gleðiefnið.
Takk drengir fyrir skemmtilegan eftirmiðdag, bara gaman.
3 ummæli:
Takk sömuleiðis.
Verðum að endurtaka reglulega.
M2
Eru háforgjafarmenn alltaf svona væmnir? Ég bara spyr þar sem ég virðist vera á hraðri leið í ykkar "standard".
M7
Munurinn á háforgjafarmönnum og þeim sem eru í þínum standard er sá að við "aularnir" vitum að við erum mannlegir og gerum mörg mistök á hringnum en þín grúbba hinns vegar er haldin einhverskonar skynvillu um að þið séuð búnir að "ná þessu" og eruð þess vegna ekki í tengslum við manneskjuna í ykkur : )
Trelleley !
En vertu ávallt velkominn í mennska liðið.
Skrifa ummæli