
Sei sei já, ég skellti mér í Nevada Bob í hádeginu og verslaði svona kerru (silfraða) og vonast ég til að hún hjálpi mér heilmikið í golfinu í sumar, enda hef ég yfirleitt verið orðinn þreyttur í baki þegar líða fer á hringinn.
Flott kerra og áhyggjur mínar um að standpokinn minn yrði að vera á hlið í kerrunni reyndust ástæðulausar þar sem hann smellpassar í græuna.
Hún verður tekin til kostana í dag.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli