27.5.08
Bíó: Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull (2008)
Eftir 19 ára bið kemur fjórða myndin um fornleifafræðinginn með svipuna Indiana Jones.
Þar sem ég var alltaf aðdáandi myndanna um kappann þá var það aldrei spurningu um að skella sé í bíó til að fagna endurkomu hans.
Við skötuhjú fórum í VIP salinn í Álfabakka og er alveg hægt að mæla með því sérstaklega þegar maður fer eins sjaldan í bíó ein og raunin er, stórt tjald miðað við fjölda sæta og þrusu sánd.
Myndin er ekki eins góð og hinar fyrri en hún tekur samt myndir eins og sjóræningjamyndirnar (allavega seinni tvær) og snýtir þeim.
Mikið fjör og læti.
Eina sem ég get fundið að er að í fyrstu myndunum þremur var einkennandi húmör sem gekk oft út á það að Indy var ekki fullkominn, þessi húmör var ekki í þessari mynd og hann steig bara ekki feilspor.
Annars fínasta skemmtun.
Einkunn: 7/10
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli