Það er algerlega svo ég að lenda í því að þegar ég fer í Bónus, Krónuna eða Nóatún eða álíka að lenda á eftir einhverju tímalausu gerpi við kassann.
Einhver gamlingi sem tók sparibaukinn með handtelur hverja einustu krónu sem tekur óra tíma. Eða konan sem í Krónunni var á undan mér og uppgötvaði að það var smá gat á sykur pakkanum sem hún keypti og bað afgreiðslu stúlkuna um að ná í annann pakka í staðinn, afgreiðslustúlkan var ekki að fatta hvað konan var að biðja um enda Pólsk og var ekki alveg að skilja.
Viku áður í Krónunni var par með ungt barn á undan mér við kassann, maðurinn var að raða í pokana þegar konan rak augun í að hún fékk ekki 10% afslátt á einhverja vöru og eftir alltof langan tíma tókst að leiðrétta þessi hræðilegu mistök og fékk konan því endurgreiddar heilar 12 krónur, mér og manninum hennar til mikillar gleði.
Og að lokum þá var ég að koma frá því að fara með litla græna bílinn minn úr skoðun, ok mér var sagt að biðin væri 25-30 mín, samkvæmt númerakerfinu áttu að vera 5 bílar á undan mér, en svo alltaf inn á milli komu starfsmenn Frumherja úr með lykla í hönd og tóku bíla sem voru á planinu og ekki breittist númera kerfið við það...nei nei.
Á endanum fóru c.a. 12-15 bílar inn á undan mér, en það besta var að bíllinn sem átti að fara næst á undan mér inn var einmitt nýlegur Volvo og hann var svo fullkominn að drengurinn sem ætlaði að fara með hann inn gat ómögulega komið honum í gang.
Eftir smá stund gaf hann vinnufélaga sínum merki um að koma, hann kom en náði heldur ekki árangri með sænska undrið, á endanum voru komnir 4 Frumherjar að pæla í Vollanum en þeim fimmta ofbauð gaufið ítti á hnapp og...voila...mitt númer kom upp : )
Er þetta ekki bara samsæri?
2 ummæli:
Þetta er pottþétt samsæri!
Þetta kemur ekki fyrir neinn nema þig!!!
;)
M2
Ahh...mig grunaði það : )
Skrifa ummæli