
Það er ekki gott.
En hvað er málið?
Jú stór hluti af þessum myndum tilheyrir kvikmyndahátíð sem heitir Horrorfest, og þar sem ég er hryllilegur perri þá lagði ég það á mig að horfa á allar myndirnar sem voru á síðustu hátíð : / einkennilegt ekki satt?
Ég meira að segja ákvað að setja ekki inn á bloggið mitt umfjöllun eða trailer um nokkrar af þessum myndum einfaldlega vegna þess að ég var farinn að skammast mín fyrir að vera að eyða tíma í svona rusl : )
Ekki er vandamálið að ég hafi ekki úr nógu af "góðum" og "vönduðum" myndum að velja, ég bara.........stundum dettur maður niður á gullmola í þessu hryllings dóti en oftast dettur maður bara í skítahaug.
Nú set ég stefnuna á að horfa "nánast" eingöngu á "betri myndir" og get ég nefnt nokkrar sem eru næstar í röðinni, t.d. :
American Gangster 8,1 imdb
A History Of Violence 7,6 imdb
3:10 to Yuma 8,0 imdb
Eastern Promises 7,9 imdb
Into the Wild 8,3 imdb
The Lives of Others 8,5 imdb
El Orfanato 7,8 imdb
Þannig að það eru bjartir tímar framundan í bíómynda glápi, þó svo að eflaust detti inn á milli þessara gæða mynda eitthvað slakara, en ruslið er bannað : )
Engin ummæli:
Skrifa ummæli