30.5.08

Golfhringur #5

Strandarvöllur Hella 29/5.
M1, M2, M4, og M7 skelltu sér austur til að spila í þeirri rjómablíðu sem þar átti að vera, það gekk ekki alveg eftir þó svo að veðrið hafi verið ágætt.
Ekki er hægt að segja að ég hafi verið að gera gott mót þrátt fyrir að byrja á því að para 1. holu, eftir það var leiðin niður á við : )
Það sem stendur upp úr þó er á nokkurs vafa sú upplifun að standa á teig þegar að jarðskjálftinn gekk yfir, algerlega ólýsanleg tilfinning að finna jörðina skríða til og frá undir fótum sér.
Í bæði skiptin sem við fundum fyrir skjálfta var M2 á teyg og sem betur fer var það í einu skiptin sem hann átti teig því annars væri Suðurland líklega í rúst : )

Engin ummæli: