Við skelltum okkur áðan í síðbúinn hádegisverð á Eldsmiðjuna niðri í bæ.
Ég veit ekki betur er að Eldsmiðjan sé einn af eldri pizzustöðum bæjarins og hef aldrei heyrt annað en gott um staðinn, þess vegna varð ég fyrir talsverðum vorbrigðum þegar að inn var komið.
Staðurinn er frekar sjúskaður og þráir ekkert heitara en að láta nudda sig með málningu að innan, og ekki var að hjálpa til að í veitingasalnum hafði starfsfólkið ekki fyrir því að taka af borðunum eftir viðskiptavinina og þess vegna var á tæplega helmingi borðana matarleifar, diskar og glös.
Ekki vantaði að þegar við gengum upp stigann í matsalinn kom strax starfsmaður með matseðla handa okkur og fór svo...............................og lét ekki sjá sig í laaangan tíma, eftir að hafa tekið á minni þekktu þolinmæði í drjúga stund áhvað ég að fara niður og trufla teitið sem var í eldhúsinu.
Jæja sagði ég, nú nenni ég ekki að bíða lengur eftir þér sagði ég við stúlkuna sem sat á rassinum og gluggaði í tímarit á meðan að strákarnir skiptu á milli þungarokkslaga sem ómuðu um staðinn, ó guð fyrirgefðu, ég bara steingleymdi mér sagði hún og bjóst til að taka niður pöntun.
Ég pantaði Pizza Tagliatelle með pasta, papriku, rjómaosti, fleski og brokkoli svona til að prufa eitthvað annað en vanalega, og hvítlauks pizzu að auki, þetta kom svo eftir eðlilega bið og bragðaðist alveg sæmilega, fengi mér þetta þó ekki aftur færi ég aftur á þennan stað.
Sem sagt maturinn ágætur, húsnæði og þjónusta í slakari kantinum og svo myndi ég íhuga tónlistarvalið á staðnum réði ég einhverju, dúndur rokk er flott á kvöldin þegar djammarnir eru að fylla á belginn en tæplega í hádegi á laugardegi þegar fjölskyldu pakkið vill fá næði : )
Annaðkvöld erum við skötuhjú svo að fara á tónleika í Langholtskirkju að hlusta á nokkra kóra auk Diddúar og Bergþórs Pálssonar flytja Carmina Burana eftir Karl Orff.
Við erum að hugsa um að fara á veitingastaðinn Madonna og fá okkur snæðing þar áður.
Bara gaman.
3 ummæli:
Ahh Eldsmiðjan.
Man lítið eftir matnum. Man bara að Simmi krimmi stútaði fyrir okkur líter af Eldur Ís vodka sem átti að klára það kveldið.
Slæmar minningar.
M2
Sama hér, bara öðruvísi minningar : )
After getting more than 10000 visitors/day to my website I thought your moi4.blogspot.com website also need unstoppable flow of traffic...
Use this BRAND NEW software and get all the traffic for your website you will ever need ...
= = > > http://get-massive-autopilot-traffic.com
In testing phase it generated 867,981 visitors and $540,340.
Then another $86,299.13 in 90 days to be exact. That's $958.88 a
day!!
And all it took was 10 minutes to set up and run.
But how does it work??
You just configure the system, click the mouse button a few
times, activate the software, copy and paste a few links and
you're done!!
Click the link BELOW as you're about to witness a software that
could be a MAJOR turning point to your success.
= = > > http://get-massive-autopilot-traffic.com
Skrifa ummæli