1.6.08

Íslenska handbolta landsliðið brillerar!

Já enn einu sinni er íslenska landsliðið að standa undir væntingum, núna er liðið að spila í undankeppni í Póllandi og tilgangurinn er sá að tryggja tátttöku á ólympíuleikunum í Kína í sumar.
Ekki byrjaði liðið gæfulega gegn slöku liði Argentínu, sigruðu þó með óþægilega litlum mun, ég hugsaði með mér að þeir hljóta að hafa verið að slaka á gegn þeim enda eru Argentínu menn álíka hátt skrifaðir í handbolta og Íslendingar eru í fótbolta.
Svo í gær steinlágu okkar menn gegn Pólverjum og í dag eigum við svo okkar eina séns á ólympíu þátttöku byggðan á sigri á Svíum : )
Good luck with that.

Viðbót:
Strákarnir okkar voru að enda við að rúlla yfir Svíana, ég biðst afsökunar á neikvæðninni hér að ofan : )

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jamm, við höfum ekki beint verið þekktir fyrir að fara auðveldu leiðina.

Sjáum hvað setur. Smá sjens að merja svíaskrattana.

M2 - hinn jákvæði ;)

M4 sagði...

Það er gott að sjá að sumir hafi trú á strákunum okkar, enda stóðu þeir sig vel í þessum leik.

Nafnlaus sagði...

Terellelley!

M2 - hinn jákvæði ;)