Hvernig fólk getur verið að væla útaf EM í Sjónvarpinu er mér fyrirmunað að skilja.
Kannski ekki skrítið þar sem ég hef mikinn áhuga á fótbolta, en ég vil fá að vita hverju er fólk að missa af?
Fyrstu vikuna voru tveir leikir í beinni, sá fyrri kl: 16:45 og sá seinni kl 18:45.
Þessa fyrstu viku hafa Leiðarljós aðdáendur misst úr viku, eða ekki misst, bara seinkað sýningu á þeim þáttum, það tel ég ekki skipta miklu þar sem þættirnir sem sýndir eru núna á rúv er 10 ára gamlir svo að nógu er að taka.
Ég verð að bæta því við að ég var að komast að því að það hafa verið framleiddir 15.400 þættir af Leiðarljósi og nýlega var skrifað undir samning um í það minnsta nokkur ár til viðbótar : )
Ok, í viku 2 af EM voru 2 leikir á dag en sýndir á sama tíma sem þýðir enn minni truflun á daglegu lífi anti sportistanna.
Fréttatíminn var styttri og hnytmiðaðri fyrir vikið og Kastljósið datt út, miklu alvarlegra varð það nú sjaldnast enda ekkert mál fyrir frétta þyrsta að horfa á fréttirnar á Stöð 2.
Og núna í loka viku EM var einn leikur á miðvikudag og annar í gær og svo er lokaleikur mótsins á sunnudag.
Auðvitað ætti Rúv að hafa aðra rás til að sinna svona stórum verkefnum eins og EM og svo Ólympíuleikunum í sumar, en svo er ekki og engin ástæða til að öskra sig hásan út af því, persónulega horfi ég ekki á neina þætti á Rúv nema Klovn og svo kannski góða náttúrulífsþætti þegar svo ber undir, en ég nenni ekki að ergja mig á öllu hinu "ruslinu" sem sýnt er og ég hef ekki áhuga á, nógu pirraður er ég nú samt : )
Annars verð ég að segja að þetta EM mót í Austurríki og Sviss er það alskemmtilegasta knattspyrnumót sem hefur verið eins lengi og ég man, að meðtöldu HM.
Skemmtilegur fótbolti spilaður í flestum leikjum og mikið skorað, svei mér þá ef sóknarknattspyrnan á EM hefur ekki náð að búa til nokkra knattspyrnu unnendur í viðbót úr þeim sem voru að pirra sig á Leiðarljóss missi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli