30.12.05

Malt

Það vantar ekkert Malt í mig þessa dagana, og heldur ekki Appelsín ef útí það er farið.
Djöfull er ég búinn að drekka mikið af þessari eðal blöndu undanfarna daga, 0g ætla ekkert að slá slöku við fyrr en eftir áramót !
Skál fyrir Agli ! (Egili)


Satan.

29.12.05

Árið gert upp !

Þar sem þessu fyrsta (heila) ári mínu sem bloggari er að ljúka (byrjaði í maí 2004) þá finnst mér við hæfi að koma hér með uppgjör á því sem hæst stendur varðandi tónlist og bíómyndir á árinu.
Þess má svo geta að þessi póstur ku vera númer 242 sem ég skrifa á árinu.

Til að allt sé nú rétt í sambandi við músíkina þá finnst mér réttast að fara eftir ITunes varðandi mest spiluðu lögin á árinu hjá mér, annars myndi ég vafalaust freistast til að nefna einhvar lög sem eru "betri" en þau sem ég raunverulega hef hlustað mest á.
Vélarbilun olli því að spilunartalning núllaðist eftir að nokkrir mánuðir voru liðnir af árinu og því er líklegt að listinn hefði verið eitthvað öðruvísi ef að það hefði ekki gerst, t.d. hefði Damien Rice eflaust verið hátt á lista.
En hvað um það, hér er listinn yfir mest spiluðu lög ársins s.k.v. ITunes :

1. Glósóli - Sigur Rós
2. For Today I'm A Boy - Antony & The Johnsons
3. Geislinn í vatninu - Hjálmar
4. Ooh la la - Goldfrapp
5. I Will Follow You into the Dark - Death Cab For Cutie
6. Youll Never Walk Alone - G4
7. Talking to you - Denmark - Jakob Sveistrup
8. Nine Million Bicycles - Katie Melua
9. Hún - Skítamórall
10. How Do You Like Iceland? - Baggalútur

Og þannig er nú það, Sigur Rós malaði þetta þrátt fyrir að gefa ekki út plötuna "Takk" fyrr en seint á árinu.

En hvaða bíómyndir skoruðu bezt á árinu ?
A.t.h. einhverjar af þessum myndum komu út árið 2004 en ég sá þær ekki fyrr en á þessu ári.

1. Sin City
2. Million Dollar Baby
3. Sideways
4. Diarios de motocicleta
5. Hotel Rwanda
6. Broken Flowers
7. The Descent
8. The Incredibles
9. Batman Begins
10. The 40 Year Old Virgin

Þess ber að geta að myndir 1-8 skoruðu allar það sama, eða 8/10

28.12.05

A.T.H

Rúv í kveld.
21:25 Aukaleikarar (1:6) (Extras)
Bresk gamanþáttaröð eftir Ricky Gervais og Stephen Merchant, höfunda Skrifstofunnar. Hér er fylgst með aukaleikurum sem láta sig dreyma um að fá bitastæð hlutverk í kvikmyndum. Aðalhlutverk leika Ricky Gervais og Ashley Jensen en auk þess koma þekktir leikarar fram í eigin persónu, meðal annarra Ben Stiller, Kate Winslet og Samuel L. Jackson.

Satan.

RAV4 2006



Ég get ekki neitað því að mig langar í stærri bíl, kannski ekki mjög sniðugt vegna bensínkostnaðar ég veit, en stundum verður maður bara að vera svolítið góður við sig.
Ég var svolítið spenntur fyrir módelinu sem er nú í afgreiðslu, en því miður er sá bíll bara of lítill þó svo að hann sé mjög skemmtilegur að öllu öðru leiti t.d eiga mamma og pabbi splunkunýjan RAV4 og hann er bara flottur.
En nú er að koma ný týpa á nýja árinu 2006 og mér finnst hann vera nokkuð svalur og svo er hann stærri og lengri einum 35 cm lengri, og allir vita að það er lengdin skiftir máli : )
Bíllin verður fáanlegur í hinum ímsustu útgáfum þó svo að öruggt sé að þær muni ekki allar fást í umboðinu hér.
Vélastrærð verður frá :
2.4-liter, I4, 166 hestöfl og upp í 3.5-liter, V6, 269 hestöfl
Svo verður fróðlegt að sjá verðlistann.

Ég er bara að verða nokkuð spenntur !

Satan.

27.12.05

Andstyggilegt !

Það er alltaf jafn sorglegt þegar að svona lagað gerist !
Á aðfangadag fannst 85 ára gömul kona látin í íbúð sinni í fjölbýlishúsi í RVK !
Það var þó ekki fyrr en að nályktin var farin að yfirgnæfa smákökubaksturs lyktina að nágrannar konunar hringdu í lögguna og kvörtuðu !
Konu greyið hafði þá legið látin í 3 vikur ein og yfir gefin á heimili sínu !

Ef að þetta segir ekki allt um hvernig (ekki) er hugsað um gamla fólkið í landi alsnægtanna þá skal ég kjósa Vinstri Græna í næstu kosningum !


Satan.

Pæling

Hvernig stendur á því að þegar að Dr. Dre notar orðið "nigger" á plötunni sinni selur hann hana í bílförmum og er tilnefndur til MOBO verðlaunanna fyrir textagerð, en þegar að ég segi þetta inni á Alþjóðahúsinu á Hverfisgötu 18 þá er mér skipað þaðan út og mér sagt að ég megi aldrei koma þangað aftur ?
Fáránlegt !


Satan.

23.12.05

Raðmorðingjar óskast

Ein af mest seldu skáldsögunum fyrir jólin er bókin Afturelding eftir einhvern gaur.
Bókin sú fjallar um raðmorðingja sem einblínir á að stúta gæsaskyttum, sem er auðvitað hið besta mál þó svo að rjúpna skyttur fari meira í taugarnar á mér persónulega.
En hvernig stendur á því að íslendingar eigi engan almennilegan raðmorðingja ?
Ég tel ekki með einhverja torfkofakalla síðan árið 1153 þegar það að höggva mann og annan þótti vera hinn eðlilegasti hlutur.
Svo er alltaf verið að tala um að íslendingar séu svo nýungagjarnir og þurfi alltaf að vera að apa eftir stærri og merkilegri þjóðum, en engum hefur dottið í hug að gerast raðmorðingi !
Hversu mikil snilld væri það nú ef að einhver tæki upp á því að stúta karlmönnum yfir 30 ára sem eru of þungir og eiga það svo aukalega sameiginlegt að vera úr sveit.......andskoti yrði það spennandi.......ég færi varla útúr húsi af hræðslu !
Svo í ljósi þess að löggan stæði ráðþrota í leit sinni að morðingjanum þá væri maður með hland fyrir hjartanu og kúkinn í buxunum af hræðslu mánuðum saman !

Það vantar eitthvað svona á klakann !


Satan.

22.12.05

Lærðu að lesa japönsku


Bara að halla höfðinu til hægri !


Satan.

Endaþarms aflitun !

Ég las í grein í Fréttablaðinu í gær að nýjasta æðið í útlitstdýrkuninni væri að aflita endaþarmsopið þannig að það yrði bleikt eða sem næst húðlit, en eins og allir vita hefur hringvöðvinn tendensa til að dökkna með árunum !
Kræst !
Allt í einu virðast aflituðu eff emm hnakkarnir ekkert svo slæmir !


Satan.

20.12.05

NFS

Í annars sorglegri frétt í aðalfréttatíma NFS um daginn tókst mér að hlæja pínulítið, þannig var að fréttaþulur var að segja frá því að rannsókn á sjóslysinu við Viðey þar sem hjón fórust, hafi skipstjórinn verið drukkinn !
Þetta er ömurlegt að heyra og sorglegt mjög, en það sem kitlaði mig var að einnig leiddi rannsóknin í ljós að báturinn hafi verið á 17 snúninga hraða þegar að henn steytti á skerinu með þessum hörmulegu afleiðingum.
Ég hef verið á sjó og ég veit fyrir víst að siglingahraði er ekki mældur í snúningum heldur mílum !
Þulurinn hefur líklega verið að hugsa um þvottavélina sína meðan hann las fréttina !


Satan.

DOOM


Þessi mynd er gerð eftir hinum gríðarvinsæla samnefnda tölvuleik.
En eins og oftast er þegar að mynd er gerð eftir tölvuleik þá er myndin frekar misheppnuð !
Í nútíma kvikmyndagerð þekkjast ekki lengur lélegar kvikmyndabrellur og þær eru það eina sem er eitthvað gaman að hér.
Í aðal er The Rock ( heitir reyndar Dwayne Douglas Johnson) og hann er auðvitað ekki merkilegur leikari enda er þess sjaldnast krafist í svona myndum.
Já svo verð ég að taka fram að myndin náði sínum lægsta punkti í svona gamaldags "mano a mano" slagsmála atriði, eitthvað sem maður hefur ekki sésð í myndum í mörg ár....tja....nema þegar er verið að gera grín að svoleiðis atriðum.

Einkunn. 4/10

Satan.

19.12.05

Blaðið

Andskotinn !
Nú er Mogginn búinn að kaupa Blaðið sem hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér að undanförnu, og þá geta Blaðs menn og konur gleymt því að geta talist óháð í sinni blaðamennsku !

Já svona er þetta, öll erum við hórur ef að nægur peningur fæst !


Satan.

17.12.05

Alfie


Alfie er endurgerð samnefndar myndar síðar 1966 þá með Michael Caine í aðal.
Í þessari fer Jude Law með aðal og í öðrum stórum rullum eru : Sienna Miller, Nia Long, Omar Epps, Marisa Tomei og Jane Krakowski.
Myndin fjallar um kvennabósan Alfie sem er með allt á hreinu í sambandi við kvennsunar og nýtur lífsins til fullnustu vaðandi frá einni gellunni til annarar.
En svo gerist eitthvað.
Ég skemmti mér alveg ágætlega yfir þessari mynd þó að hún sé ekki svona ha ha ha fyndinn þá er hún full af skemmtilegum pælingum.
Í fyrstu fannst mér svolítið skrítið að Alfie er alltaf að tala við áhorfandann þar sem hann er að útskýra hitt og þetta sem er að gerast hjá honum og hvað hann er yfir höfuð að pæla.
Mér finnst Jude Law skemmtilegur leikari og í þessu hlutverki er hann heima hjá sér, svo er líka áhugavert að hann kynntist við gerð þessarar myndar Siennu Miller, en eins og ég hef áður talað um eru þau í aðal í mestu ástarmála sápu þessa árs.....tja...ásamt jennifer Aniston og Brad Pitt og Angelínu Jólí.

Einkunn, slefar í 7/10


Satan.

16.12.05

Mannætur : )

Three men who were lost in a jungle on a desert island were captured by cannibals. The cannibal king told the prisoners that they could live if they passed a simple trial.

The first step of the trial was to go to into the jungle and get ten pieces of the same kind of fruit.

So all three men went their separate ways to gather fruits.

The first one came back and said to the king, "I brought ten apples." The king then explained the trial to him. "You have to shove the fruits up your arse without any expression on your face or you'll be eaten."

The first apple went in... but on the second one he winced out in pain, so he was killed.

The second one arrived and showed the king ten berries. When the king explained the trial to him he thought to himself that this should be easy. 1...2...3...4...5...6...7...8... and on the ninth berry he burst out in laughter and was killed.

The first guy and the second guy met in heaven. The first one asked, "Why did you laugh, you almost got away with it?"

The second one replied, "I couldn't help it, I saw the third guy coming with pineapples."

15.12.05

Ráð undir rifi hverju !

Vertu ekki að eyða pening í rándýra IPoda og svoleiðis dót !
Lang einfaldast er að rifja upp eitthvað skemmtilegt lag, og raula það svo bara !
Svo þegar að þú ert komin með leið á því lagi, þá rifjar þú bara upp eitthvað annað skemmtilegt lag.......og raular það svo bara !


Satan.

14.12.05

Ferguson segir fjölmiðla hata Man Utd !


Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United röflaði yfir enskum fjölmiðlum í dag, um leið og hann hvatti stuðningsmenn félagsins til þess að fylkja sér á bak við lið sitt sem aldrei fyrr.
Ferguson, sem strunsaði út af blaðamannafundi að loknum leik Manchester United og Everton síðasta sunnudag þegar honum ofbauð spurningarnar sem á honum dundu, segir að þeir fjölmiðlar sem gefnir eru út á landsvísu í Englandi leggi fæð á félagið.
„Þeir hata Manchester United og hafa alltaf gert"

News flash herra Ferguson, það hata allir Man Utd !


Satan.

13.12.05

Layer Cake


Layer Cake skartar hinum nýja James Bond, leikaranum Daniel Craig og í aðal hjá konunum er Sienna Miller sem er eiginlega betur þekkt fyrir að vera sú sem Jude Law kramdi hjartað í, en það hefur vakið svo mikla athygli að Sienna er að verða gríðarlega eftirsótt leikkona fyrir vikið......tja og svo er hún líka annsi flott !
Hvað um það, myndin fjallar um mann sem er búinn að vera í glæpabrannsanum í einhvern tíma og hefur þénað vel á því en vill hætta, en flækist svo í helvítis leiðindi.
Myndin mynnir svolítið á Lock, Stock And Two Smoking Barrels, en er ekki eins hrá.
Ágætis mynd.

Einkunn. 7/10


Satan.

12.12.05

Pæling

Það er oft sagt að það sé ekki hægt að dæma bók eftir kápunni, þetta er nú bara helvítis vitleysa !
Tökum sem dæmi bókina "40 skemmtilegir hlutir í Anus" þar sem myndin á kápunni var af konu að setja borðtennis kúlu í boruna gaf ágætis fyrirheit um hvað reyndist vera efni bókarinnar !


Satan.

11.12.05

Antony And The Johnsons


Ég fór ásamt öllum mínum nánustu vinum á tónleika í fríkirkjunni í gærkveld með Antony And The Johnsons.
Þessir tónleikar voru algerlega frábærir og munu lengi lifa í minningunni, hljómburðurinn í fríkirkjunni var alveg frábær og líka stemningin sem var mjög afslöppuð og þægileg.
Antony virtist líka mjög vel að spila þarna og sagðist vera búinn að vera að bíða eftir að geta spilað þessa tónleika á þessum stað, og það fannst vel á flutningi hans og sveitarinnar sem með honum var.
Áhorfendur voru vel með á nótunum og fögnuðu vel og lengi í uppklappinu og líka að tónleikunum loknum enda fengu tónleikagestir að taka þátt í næstsíðasta lagi tónleikana með því að tvítóna með söng á völdum stöðum í laginu með alveg ótrúlega miklum áhrifum og var ekki laust við að maður fengi gæsahúð í hvert skipti sem að áhorfendur tónuðu með laginu.

Sem sagt, öruggt er að þeir sem voru á þessum tónleikum upplifðu eitthvað einstakt sem seint mun gleymast.
Húrra fyrir Tony !


Satan.

9.12.05

Þrælfínt og þráðlaust


Nú er AirPort Express dótið komið í gang hjá mér og spila ég nú mína uppáhalds mússík þráðlaust í toppgæðum frá tölvu og í gegnum græurnar í stofunni !
Djöfull er gaman að lifa á tölvuöld !

Satan.

8.12.05

Árekstur : )

A woman and a man are involved in a car accident on a snowy, cold Monday morning; it's a bad one.

Both of their cars are totally demolished but amazingly neither of them is hurt.

God works in Mysterious ways.

After they crawl out of their cars, the woman says, "So.... you're a man. That's interesting. I'm a woman. Wow, just look at our cars! There's nothing left, but we're unhurt. This must be a sign from God that we should meet and be friends and live together in peace for the rest of our days".

Flattered, the man replies, "Oh yes, I agree with you completely, this must be a sign from God!"

The woman continues, "And look at this, here's another miracle. My car is completely demolished but this bottle of wine didn't break. Surely God wants us to drink this wine and celebrate our good fortune."

Then she hands the bottle to the man.

The man nods his head in agreement, opens it and drinks half the bottle and then hands it back to the woman.

The woman takes the bottle and immediately puts the cap back on, and hands it back to the man.

The man asks, "Aren't you having any?"

The woman replies, "No. I think I'll just wait for the police...."

7.12.05

ManUre


Haldiði ekki að ManUre hafi tapað fyrir Benfica í kveld : )
Og þar sem þeir enduðu neðstir í sínum riðli þá komast þeir ekki einu sinni í Evrópukeppni félagsliða : )
: ) : ) : ) : ) : ) : )

Mikið eru þetta leiðinleg tíðindi : )


Satan.

Pæling

Nietzsche sagði eitt sinn að það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari, ég held að þetta sé bara alls ekki rétt, frændi minn fékk 4 heilablóðföll á tveimur árum og hann er slefandi hálfviti í dag !


Satan.

5.12.05

Goggi giftir sig !


Já, George Michael er búinn að tilkynna að hann og "lífsförunautur" hans sem ég veit ekki hvað heitir munu líklega gifta sig á nærsta ári.
Satan óskar þeim báðum til hamingju með ákvörðunina og vonar að þeir verði áfram sem og endranær hamingjusamir.
Svo finnst mér að Goggi ætti að láta gera heimildamynd um verknaðinn og ætti þá hún að sjálfsögðu að heita :
My Big Fat Gay Wedding !


Satan.

4.12.05

The Descent


Þessi mynd er besta hryllings mynd sem ég hef séð í laaaangan tíma.
Hún fjallar um hóp vinkvenna sem fara í hella skoðunarferð og lenda í frekar óvæntum skít.
Ég veit svo sem ekki hvað meira ég ætti að segja um þessa mynd, nema það að ég gerði mér vonir um að hún væri góð og hún reyndist betri en ég vonaði.
Í aðal er engin fræg, nema að ef að þú hefur séð hina stórgóðu mynd The Magdalene Sisters (2002), þá kannastu við eina leikkonuna.
Leikstjórinn er ungur og ekkert sérstaklega frægur, það merkilegasta hingað til er myndin Dog Soldiers (2002) sem er varúlfa horror.

Einkunn 8/10


Satan.

3.12.05

Árið 2005 er ekki..........

..........gott ár til þess að gefa út sóló plötu, einfaldlega vegna þess að það eru allir og ég meina allir að gefa út sólóplötu á þessu ári !
Meðal annara eru :

Hannsa - Mannsöngvar
Garðar Thor Cortes - Cortes
Bergsveinn - September
Heiða - Hluti af mér
Jónsi - Jónsi
Magnús Þór Sigmundsson - Hljóð er nóttin
Ragnheiður Gröndal - After The Rain
Hera - Don't Play This
Cynic Guru - Iceland
Helgi Björns - Yfir Esjuna
Óskar Pétursson - Þú átt mig ein
Regína Ósk - Regína
Svala - Bird Of Freedom
Jón Sigurðsson – Til þín
Friðrik Karlsson - Töfrandi andrúmsloft
Sigga Beinteins - Allt eða ekkert: Bestu lögin
Bjarni Ara – Svíng
Páll Rósinkranz - Christmas Songs
Matti - Ólýsanleg

Ég er svo örugglega að gleyma einhverjum.
Svo er það dapurlegast af öllu, að laaangflestir upptalinna "listamanna" eru með svo takmarkaðan metnað að þeir láta sér næja að gera "cover" útgáfur af lögum annara.
Persónulega ætla ég að bíða með að gefa út mína sólóplötu þangað til haustið 2006, þá verð ég líklega einn af fimm það árið.
Fyrir áhugasama þá skrifaði ég einmitt sérstakt "coverblogg" furir þó nokkru síðan, og er það gott til upprifjunar núna.
Hér er slóðin : http://moi4.blogspot.com/2005/08/endurtgfur.html

Satan.