31.8.05

Meðlag # 2

Þessi snilldar lína var skrifuð af konu einni sem var að sækja um meðlag frá ríkinu í bretlandi, og var að svara spurningunni um hver væri faðir barnsins :

Regarding the identity of the father of my twins; child A was fathered by Jim Munson. I am unsure as to the identity of the father of child B, but I believe that he was conceived on the same night.


Satan.

30.8.05

Meðlag

Þessi snilldar lína var skrifuð af konu einni sem var að sækja um meðlag frá ríkinu í bretlandi, og var að svara spurningunni um hver væri faðir barnsins :

I am unsure as to the identity of the father of my baby; after all when you eat a can of beans you can't be sure which one made you fart.



Satan.

29.8.05

Secret Window


Þessi mynd er gerð eftir sögu Stephen King og fjallar um rithöfund sem lendir í skrítnum skít.
Myndinni leikstýrir David Koepp sem hefur aðallega verið í því að skrifa handrit að bíómyndum, a.t.h. hann semur ekki sögurnar heldur skrifar þær upp þannig að þær hennti betur bíó forminu.
T.d. skrifaði hann handrit af:
Jurassic Park (1993), Carlito's Way (1993), Mission: Impossible (1996), Stir of Echoes (1999), Spider-Man (2002), War of the Worlds (2005).
Allt myndir sem slógu í gegn.
Í Secret Window fer Johnny Depp með aðal og svo er hinn stórgóði John Turturro með stóra rullu.
En myndin er bara svona meðal góð, eins og oft vill verða með myndir gerðar eftir Stephen King.

Einkunn 6/10


Satan.

28.8.05

Little sister : )

I was happy. My girlfriend and I had been dating for over a year, and so we decided to get married.

My parents helped us in every way, my friends encouraged me, and my girlfriend? She was a dream! There was only one thing bothering me, very much indeed, and that one thing was her younger sister.

My prospective sister-in-law was twenty years of age, wore tight mini skirts and low cut blouses. She would regularly bend down when near me and I got many a pleasant view of her underwear.

It had to be deliberate. She never did it when she was near anyone else.
One day little sister called and asked me to come over to check the wedding invitations. She was alone when I arrived. She whispered to me that soon I was to be married, and she had feelings and desires for me that she couldn't overcome and didn't really want to overcome.

She told me that she wanted to make love to me just once before I got married and committed my life to her sister. I was in total shock and couldn't say a word.

She said, "I'm going upstairs to my bedroom, and if you want to go ahead with it just come up and get me." I was stunned. I was frozen in shock as I watched her go up the stairs. When she reached the top she pulled down her panties and threw them down the stairs at me.

I stood there for a moment, then turned and went straight to the front door. I opened the door and stepped out of the house. I walked straight towards my car. My future father-in-law was standing outside.

With tears in his eyes he hugged me and said, "We are very happy that you have passed our little test. We couldn't ask for a better man for our daughter. Welcome to the family.


"The moral of this story is:"
"Always keep your condoms in your car."

26.8.05

Cursed


Þar sem ég telst hryllings mynda fan, þá "neyðist" ég oft til að horfa á eitthvað sem maður veit að er ekki gott en vonar að komi skemmtilega á óvart, það gerist ekki í þessu tilfelli.
Christina Ricci sem er annars frábær leikkona mun um ókomna framtíð sjá eftir að hafa leikið í þessari mynd !
Leikstjóri er hinn mikilsvirti horror leikstjóri Wes Craven ( The Last House on the Left, The Hills Have Eyes, A Nightmare On Elm Street og Scream ) sem hefur eins og sjá má á upptalningunni gert marga góða hluti, klikkar hér illilega.
Einkunn 4/10


Satan.

23.8.05

Kalli og súkkulaðiverksmiðjan


Er nýbúinn að horfa á þessa mynd og verð að segja að hún olli mér smá vonbrigðum.
Tim Burton leikstýrir hér Johnny Depp eins og svo oft áður en þeir hafa bara oftast verið í meira stuði en núna.
Myndin kemur í bíó 8 sept endilega sjáið eitthvað annað.
Náði ekki að heilla mig, nett vonbrigði.
Einkunn 6/10


Satan.

Endurútgáfur

Endurútgáfur á gömlum íslenskum lögum er algerlega málið í dag !
Fyrir c.a tveimur árum síðan gáfu KK og Maggi Eiríks út plötuna 22 Ferðalög sem sló í gegn og seldist í 14 þúsund eintökum á því árinu. Síðan þá hefur hver "listamaðurinn" séð sér leik á borði og viljað taka þátt í gullæðinu, t.d gaf hljómsveitin Á Móti Sól út diskinn 12 Íslensk Topplög í fyrra sem seldist eins og nýbakaðar pönnukökur, enda innihélt diskurinn gamla hittara eins og : Fram á nótt, Sagan af Nínu og Geira, Sirkus Geira Smart, Rómeó og Júlía, Traustur vinur, Ég fann þig, Ég veit þú kemur og Eitt lag enn.
Þetta getur bara ekki klikkað, og gerði það auðvitað ekki, og viti menn og konur í sumar kom svo út ný plata frá þeim sólar andstæðingum sem bar heitið Hin 12 Topplögin og innihélt gamla smelli eins og : Þú og ég, Þrisvar í viku, Lítill drengur, Hjálpaðu mér upp, Afgan, Bíólagið og Fyrsti kossinn. Skotheld plata sem rokselst og ekki má gleyma að böllin með bandinu eru nú orðin stútfull af klassíkerum sem yngri ballgestir tengja beint við viðkomandi hljómsveit en ekki upprunalegu flytjendurna, sem er auðvitað hið bezta mál.
Svo kom auðvitað út í sumar önnur plata með KK og Magga sem heitir Fleiri Ferðalög og gerir út á nákvæmlega sama markaðinn og síðast, og auðvitað rokselst platan enda vel heppnuð eins og forverinn.
Svo má auðvita minnast á gríðar velheppnaða plötu Guðrúnar Gunnarsdóttur þar sem tekin eru fyrir lögin sem eftirlætis söngkona þjóðarinnar Ellý Vilhjálms gerði ódauðleg. Plata Guðrúnar seldist í kílómetra vís og uppselt var á fjölmarga tónleika Guðrúnar þar sem flutt var sama efni. Svo er bara spurning hvort að ekki sé til næjanlega mörg lög til að gera framhaldsplötu ?
Nylon gellurnar eru svo búnar að mjólka þennan sama spena duglega, og allt Idol liðið er líka að hamast við að endurgera gamalt efni og svona má lengi telja.
Þá er svo sem hægt að tala um þá sem gera út á erlent efni eins og stór söngvarinn Páll Rosinkranz sem er í tónlistarlegu "copy paste" og hinn margreyndi Björgvin Halldórs sem hefur alla tíð með einstaka undantekningum þó tekið erlend lög og gert við þau íslenska texta með góðum árangri. Er þó jólatónlistin frá Bo Hall kapituli útaf fyrir sig en Bo er einstaklega duglegur að gera vinsæl Ítölsk popplög að Íslenskum jólahitturum, enda er maðurinn bara scnillingur, respect.



Satan.

Grænmetisætur

Það er alltaf verið að tuða um að grænmeti sé svo hollt og gott fyrir mann, samt hef ég aldrei séð grænmetisætu sem lítur vel út !
Sjáið bara kellinguna sem rekur grasastaðinn og er alltaf í auglýsingum röflandi um hvað veitingastaðurinn hennar er æðislegur og tuðandi um hvað arfi sé hollur, hún lítur hræðilega út, er eins og hún hafi dáið fyrir vikum síðan úr próteinskorti !
Svo sá ég viðtal við tónlistarmanninn Moby sem er líka arfa fanatic og maðurinn er eins og karakter úr Night of the living dead !
Það sem þetta njóla nagandi lið þarf er blóðug steik, ekki hundasúrur !


Satan.

15.8.05

Golfbúðin Hafnarfirði


Ég fékk í jólagjöf frá konunni prýðisgóðan Go golfpoka sem hefur reynst mér vel, tja nema hvað að hann tók uppá því að bila pínulítið á þann hátt að plast eitt sem heldur löppunum frá því að leka of langt frá pokanum tók uppá því að brotna einmitt með þeim afleiðingum að þegar að maður lagði pokan frá sér þá lak hann niður í jörðina, sem er ekki gott þegar að um standpoka er um að ræða. Nema hvað að ég fór með pokann í Golfbúðina í Hafnarfirði þar sem hann var keyptur og spurði afgreiðslumanninn um hvort að það væri hægt að laga þetta, hann svaraði því svo að það gæti svo sem vel verið hægt en að hann vildi mikið frekar láta mig fá nýjan poka. Ég var að sjálfsögðu mjög sáttur með það og þegar að hann kom með poka sem að hann taldi að væri eins sá ég að þar var um að ræða stærri og sniðugri poka t.d með vasa fyrir gsm og annan vasa ætlaðan fyrir sólgleraugu, þar sem ég er heiðarlegur andskoti benti ég honum á að þessi nýji væri nú svolítið gerðarlegri og spurði hvort að mikill verðmunur væri á milli þess gamla og nýja, þá bauð hann mér að fá þennan nýja fyrir 1000 krónur sem að ég þakkaði pent fyrir.
Þetta kallar maður góða þjónustu og er ég viss um að ekki allar golf verzlanir hér í bæ hefðu höndlað málið svona heldur bent mér á að ég hlyti að hafa misboðið pokanum á einhvern hátt.
Þannig að mér er það bæði ljúft og skylt að mæla með þessari búð og þessari þjónustu sem þarna er veitt !
Góðar stundir.


Satan.

14.8.05

Íslenskur bachelor


Ég hef heyrt að það gangi frekar illa að fá karlmenn til að skrá sig í leit Skjás eins að hinum íslenska bachelor, að minnsta kosti einhverja alvöru gaura. Er það bara ég eða hefur einhverjum að mínum dyggu lesendum dottið M7 í hug sem hinn fullkomni "brúðgumi" ? Pælum aðeins í þessu, M7 er gríðarmörgum kostum búinn, hann er skemmtilegur og fríður, traustur og í góðri og vel launaðri vinnu, á flottan bíl og býr í flottu húsi, er barnlaus og á ekkert misheppnað hjónaband að baki, á góðan og traustan vinahóp sem myndi sóma sér vel sem aðstoðarkarakterar í þessum vinsæla sjónvarpsþætti !
Þetta er nú eiginlega svo skothelt að ef M7 skráir sig ekki til leiks þá mun ég gera það fyrir hann !


Satan.

Crash


Er nýlega búin að horfa á þessa mynd.
Mæli hiklaust með henni.
Einkunn 9/10


Satan.

10.8.05

Viðurstyggð !


Hér á landi er staddur gaur sem ég veit ekki hvað heitir en hefur það að atvinnu að herma eftir Prince (áður þekktur sem merki). Nema hvað þá kom þessi gaur fram í ísland í dag á stöð 2 í gær og ég á ekki orð að lýsa tilfinningunum sem helltust yfir mig, það var einhverskonar blanda af ógeði, örvæntingu og vorkunn !
Gaurinn er álíka líkur Prince (áður þekktur sem merki) og William Hung er líkur Ricky Martin !
Svo eru með fíflinu blásarar og bakradda lið og hljómsveit........eins og hann væri eitthvað merkilegur !
Ég mana þig að fara á visir.is og þar á veftíví og skoða ísland í dag þáttinn og líta viðurstyggðina augum, en á fastandi maga samt, nú eða bara fara og berja fíflið augum (eða berja hann bara) á Gauk á stöng þar sem hann verður með tvenna tónleika um helgina.


Satan.

7.8.05

Farsi !

Farsinn um hverja Íslenska landsliðið í fótbolta mun leika við 17 ágúst n.k heldur áfram.
Fyrst voru það Venesúela svo Kólimbía og núna eru það Suður Afríka !
Maður hlýtur að spyrja sig hverjir eru það næst ? Burkina-Faso eða kannski Kúalalumpur svo gætu þeir spilað við Þór Akureyri !
Er það von að maður spyrji ?


Satan.

Enski boltinn


Eftir eina viku hefst enska úrvalsdeildin og ég ætla að gerast svo djarfur að spá fyrir um efstu sætin.

1. Chelsea gjörsamlega rústuðu deildinni á síðasta tímabili og hljóta að vera líklegastir til sigurs í þetta skiptið líka. Þeir hafa styrkt hópinn með þeim Shaun Wright-Phillips frá Man City, Asier del Horno frá Atletic Bilbao og endurheimt þá Hernan Crespo frá AC Milan og Carlton Cole frá Charlton. Það er hins vegar spurning um hvort að Chelsea verða eins heppnir með meiðsli núna og í fyrra, ef að t.d. Frank Lampard eða John Terry meiddust gæti komið smá skjálfti í liðið. En þeir eru með svo breiðan hóp að kannski myndi það engin áhrif hafa.

2-3. Arsenal eru líklega eina liðið sem getur keppt um titilinn þetta tímabil við Chelsea. Arsenal hafa síðustu 9 ár ekki endað neðar en 2. sætið og gera það líklega ekki þetta tímabil heldur. Viera er farinn og ég er ekkert viss um að það muni veikja liðið að neinu ráði, á síðasta tímabili byrjaði Arsenal gríðarlega vel og hélt áfram sigurgöngu sinni frá tímabilinu þar áður og unnu alla sína leiki í ágúst og byrjum sept án Viera sem var meiddur. Svo eru Arsenal komnir með hinn gríðarsterka Alexandr Hleb frá Sutttgart og á hann eflaust eftir að verða þeim sterkur.

2-3. Liverpool unnu nánst öllum að óvörum meistaradeildina í vor og hafa styrkt sig mikið fyrir komandi tímabil. Það er ekki fræðilegur möguleiki í helvíti að Liverpool lendi í öðru eins meiðsla rugli eins og á síðasta tímabili. Enn þurfa þó Liverpool að fá sterkan hægri kant mann og helst einhvern sterkan tila að leysa af Carragher eða Hyypia. Þegar að þetta er skrifað eru örlög Milan Baros ekki ráðin en ég held að ef að hann fari þá verði Michael Owen keyptur heim í heiðardalinn og væru það góð skipti að mínu mati, þó svo að Baros hafi verið markahæstur á EM síðast þá hefur hann ekki ná að gera nógu vel í deildinni, en maður veit svo sem aldrei.

4-6. Man. Utd. eru frekar erfiðir að ráða í en ég hef samt þá tilfinningu að þeir muni valda aðdáendum sínum vonbrigðum þetta tímabilið. Saur Alex hefur ekkert náð að styrkja miðjuna og hefur aðeins nokkra daga í viðbót til að redda hinum aldna geðsjúklingi Keane einhverjum almennilegum partner. Hinn aldni en reynslu mikli van der Saar var fengin til liðsins en hann er farinn að dala þó svo að einstaka sinnum megi sjá gamla takta. Hið jákvæða fyrir Man. Utd er frábær sókn og ef að van Nilsteroy verður heill í vetur þá munu hann og Rooney reynast erfiðir.

4-6. Tottenham verða sterkir í vetur með marga unga og spennandi leikmenn og svo er nýkominn reynsluboltinn og baráttujaxlinn Edgar Davids sem mun styrkja Tottenham mikið.

4-6. Bolton verða hættulegir í vetur og munu örugglega halda áfram að taka stig af "stóru liðunum". Þeir keyptu hinn síhrækjandi Diouf frá Liverpool og kæmi það manni ekki á óvart að hann gerði einhvern óskunda í vetur með markaskorun og með sinni gríðarlegu munnvatnsframleiðslu, Bolton keypti lika Mexikóann Jared Borghetti sem er skæður framherji.
Big Sam hefur líka sýnt að hann þarf ekki mikið til að gera mikið og þess vegna held ég að Bolton verði í Evrópusæti næsta vor.

Ég hef hingað til ekki verið getspakur maður en eitt er víst að þetta komandi tíma bil mun verða mun meira spennandi en síðustu tvö, og að meistarar þessa tímabils munu ekki vinna með 30+ stiga mun.

Svo að lokum er hér spá minnar getspöku konu :

1. Liverpool
2. Arsenal
3. Chelsea

Góða skemmtun.


Satan.

XVI


Það er eitthvað mjög svo illt við þennan gaur !
Meira að segja ég fæ hroll.


Satan.

Kálfatjörn

Í gær fórum við Móar ásamt tveimur vinum á Kálfatjarnarvöll í Vatnsleysu til að spila golf.
Það er varla orðum aukið að segja að það hafi verið hvasst en stæðilegust menn blöktu sem píslir væru, það var þó sæmilega hlýtt þannig að enginn króknaði. Spilaðar voru 18 holur á þessum 9 holu velli en ekki verður farið út í skor hér, þar sem enginn okkar var að gera neitt af viti.
En þessi ferð var vel heppnuð enda er ekki við öðru að búast þegar að þessi hópur gerir eitthvað saman.
Eftir leik skiptust leiðir en naglarnir fóru þó heim til M5 og þar stóð til að grilla og skella í sig og efast ég ekki um að það hefur allt farið vel fram, og eins er ég viss um að einhverjir naglanna eru ryðgaðir í dag !
Takk fyrir mig.


Satan.

Ibrahim Ferrer látinn !


Kúbverski tónlistarmaðurinn Ibrahim Ferrer lést á sjúkrahúsi í Havana í dag, 78 ára að aldri.
Ferrer fæddist 20. febrúar 1927 í bænum Santiago á Kúbu en móðir hans fékk óvænt hríðir þar sem hún var stödd á dansleik. Hann hóf að syngja með hljómsveitum í Santiago þegar hann var 14 ára og á sjötta áratugnum var hann orðinn þekktur söngvari. Árið 1959 flutti Ferrer til Havana og söng þar með hljómsveit Pacho Alonso í tvo áratugi. Á níunda áratugnum settist Ferrer í helgan stein. Hann drýgði eftirlaunin m.a. með því að bursta skó fyrir fólk en hóf síðan aftur að syngja með Buena Vista Social Club.
Ferrer kom m.a. fram á tónleikum hér á landi árið 2001.
Óhætt er að segja að Ferrer hafi verið einstakur söngvari sem af geislaði hlýja og töfrar.
Hans verður saknað.


Satan.

5.8.05

Léttir i lund !


Ég fór ásamt M6 og föður hans á Laugardalsvöll í gærkveld á horfa á mína menn snýta Fylkismönnum í undanúrslitaleik Visabikarsins. Helvíti var þetta nú gaman, Valsarar komust yfir eftir 3 mínutur og bættu svo öðru marki við í seinni hálfleik, öruggur 2-0 sigur sem hefði hæglega orðið stærri.
Valur - Fram í úrslitaleik 24 Sept, ég verð þar !


Satan.

2.8.05

Politik



Já pólitíkusinn ég ætla aðeins að tjá mig um borgarstjóraefni sjálfstæðissmjörkúkaflokksins.
Ég er á því að það sé hollt fyrir alla íslendinga að skipta reglulega út þeim sem stjórna öllu í landinu, sjáiði bara Davíð og Halldór sem eru svo örþreyttir og hugmyndasnauðir að mér liggur barasta við gráti. Þeir eru orðnir svo gegnsýrðir að spillingu að þeir vita ekki mun á réttu og röngu. Er tildæmis ekki ótrúlega magnað að Esso skyldi hafa gefið Framsóknarflokknum sína gömlu höfuðstöðvar, ekkert dúbíus við það ?
Núna er svo verið að kanna hver er vinsælasti smjörkúkurinn með borgarstjóra stólinn í huga, og svona er staðan í dag :
Gísli Marteinn Baldursson 36,9%
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson 29,7%
Guðlaugur Þór Þórðarson 13,4%
Hanna Birna Kristjánsdóttir 12,7%
Júlíus Vífill Ingvarsson 7,2%.

Já, sjálfstæðissmjörkúkaflokkurinn ætlar svo sannarlega að gera Rauðsokkubandalaginu auðvelt að halda borginni !
Sá vinsælasti er flissandi strengjabrúða og júróvision fanatic og sá sem kemur þar á eftir er ólíklegur til að lifa fram að næstu kosningum !
Ég nenni svo ekki að tala um núner 3 !

Til hamingju Rauðsokkubandalagsmussur, borgin er ykkar !


Satan.

Vinna

Úff, fyrsti vinnudagur í dag eftir mánaðar frí.
Ég sem var alveg að venjast því að þurfa ekki að mæta til vinnu....jæja....hvaða hvaða....vinna í tæpan mánuð og fara svo í 4 MÁNAÐA FRÍ !!!!!
HALLELJÚGA !!!!!!


Satan.