Við skelltum okkur áðan í síðbúinn hádegisverð á Eldsmiðjuna niðri í bæ.
Ég veit ekki betur er að Eldsmiðjan sé einn af eldri pizzustöðum bæjarins og hef aldrei heyrt annað en gott um staðinn, þess vegna varð ég fyrir talsverðum vorbrigðum þegar að inn var komið.
Staðurinn er frekar sjúskaður og þráir ekkert heitara en að láta nudda sig með málningu að innan, og ekki var að hjálpa til að í veitingasalnum hafði starfsfólkið ekki fyrir því að taka af borðunum eftir viðskiptavinina og þess vegna var á tæplega helmingi borðana matarleifar, diskar og glös.
Ekki vantaði að þegar við gengum upp stigann í matsalinn kom strax starfsmaður með matseðla handa okkur og fór svo...............................og lét ekki sjá sig í laaangan tíma, eftir að hafa tekið á minni þekktu þolinmæði í drjúga stund áhvað ég að fara niður og trufla teitið sem var í eldhúsinu.
Jæja sagði ég, nú nenni ég ekki að bíða lengur eftir þér sagði ég við stúlkuna sem sat á rassinum og gluggaði í tímarit á meðan að strákarnir skiptu á milli þungarokkslaga sem ómuðu um staðinn, ó guð fyrirgefðu, ég bara steingleymdi mér sagði hún og bjóst til að taka niður pöntun.
Ég pantaði Pizza Tagliatelle með pasta, papriku, rjómaosti, fleski og brokkoli svona til að prufa eitthvað annað en vanalega, og hvítlauks pizzu að auki, þetta kom svo eftir eðlilega bið og bragðaðist alveg sæmilega, fengi mér þetta þó ekki aftur færi ég aftur á þennan stað.
Sem sagt maturinn ágætur, húsnæði og þjónusta í slakari kantinum og svo myndi ég íhuga tónlistarvalið á staðnum réði ég einhverju, dúndur rokk er flott á kvöldin þegar djammarnir eru að fylla á belginn en tæplega í hádegi á laugardegi þegar fjölskyldu pakkið vill fá næði : )
Annaðkvöld erum við skötuhjú svo að fara á tónleika í Langholtskirkju að hlusta á nokkra kóra auk Diddúar og Bergþórs Pálssonar flytja Carmina Burana eftir Karl Orff.
Við erum að hugsa um að fara á veitingastaðinn Madonna og fá okkur snæðing þar áður.
Bara gaman.
31.5.08
30.5.08
Golfhringur #5
Strandarvöllur Hella 29/5.
M1, M2, M4, og M7 skelltu sér austur til að spila í þeirri rjómablíðu sem þar átti að vera, það gekk ekki alveg eftir þó svo að veðrið hafi verið ágætt.
Ekki er hægt að segja að ég hafi verið að gera gott mót þrátt fyrir að byrja á því að para 1. holu, eftir það var leiðin niður á við : )
Það sem stendur upp úr þó er á nokkurs vafa sú upplifun að standa á teig þegar að jarðskjálftinn gekk yfir, algerlega ólýsanleg tilfinning að finna jörðina skríða til og frá undir fótum sér.
Í bæði skiptin sem við fundum fyrir skjálfta var M2 á teyg og sem betur fer var það í einu skiptin sem hann átti teig því annars væri Suðurland líklega í rúst : )

28.5.08
Smá Euro upprifjun.
27.5.08
Bíó: Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull (2008)
Eftir 19 ára bið kemur fjórða myndin um fornleifafræðinginn með svipuna Indiana Jones.
Þar sem ég var alltaf aðdáandi myndanna um kappann þá var það aldrei spurningu um að skella sé í bíó til að fagna endurkomu hans.
Við skötuhjú fórum í VIP salinn í Álfabakka og er alveg hægt að mæla með því sérstaklega þegar maður fer eins sjaldan í bíó ein og raunin er, stórt tjald miðað við fjölda sæta og þrusu sánd.
Myndin er ekki eins góð og hinar fyrri en hún tekur samt myndir eins og sjóræningjamyndirnar (allavega seinni tvær) og snýtir þeim.
Mikið fjör og læti.
Eina sem ég get fundið að er að í fyrstu myndunum þremur var einkennandi húmör sem gekk oft út á það að Indy var ekki fullkominn, þessi húmör var ekki í þessari mynd og hann steig bara ekki feilspor.
Annars fínasta skemmtun.
Einkunn: 7/10
25.5.08
Golfhringur #4
Kálfatjarnarvöllur í brakandi sól en nokkru roki líka sem gerði stundum gott on þó oftar verra : )
Fór með M2 og vorum við álíka lélegir, mér tókst að draga hann niður á mitt plan : )
Annars smá stígandi í þessu hjá mér enda veitir ekki af þar sem spilamennskan hefur verið hörmung.
Hella næst takk.

24.5.08
Veruleikafyrrtur Örn!
Ég heyrði áðan í útvarpinu auglýsingu þess eðlis að Örn Árnason ætlar að vera með skemmtun í Dalabyggð kl 20:00 í kvöld : )
Já gangi þér vel að trekkja að liðið : )

23.5.08
Kúkur í stað...........
Tekið af mbl.is
Seldi þvag í stað matarolíu
Senda frétt Senda frétt
Blogga um frétt Blogga um frétt
Maður frá Simbabve hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að blekkja íbúa í námubæ með því að selja þeim þvag í stað matarolíu.
Í Herald dagblaðinu kemur fram að Piccard Mudzingwa, 28 ára, seldi m.a einni konu þvag á strætisvagnastöð og sagði hann kaupandanum að um matarolíu væri að ræða. Konan komst að því hún hafði verið blekkt þegar hún ætlaði að fara að elda kvöldmat daginn eftir.
Mudzingwa var handtekinn þegar hann hann reyndi að blekkja annan kaupanda. Matarolía er ein af þeim vörutegundum sem eru af skornum skammti í Simbabve, en verðbólga í landinu er 165.000% og atvinnuleysi 80%.
Nú stefnir í svipað ástand hér á landi, ætli maður geti selt saur sem Chunky Peanut Butter?

22.5.08
Er'etta ekki týbíst?
Það er algerlega svo ég að lenda í því að þegar ég fer í Bónus, Krónuna eða Nóatún eða álíka að lenda á eftir einhverju tímalausu gerpi við kassann.
Einhver gamlingi sem tók sparibaukinn með handtelur hverja einustu krónu sem tekur óra tíma. Eða konan sem í Krónunni var á undan mér og uppgötvaði að það var smá gat á sykur pakkanum sem hún keypti og bað afgreiðslu stúlkuna um að ná í annann pakka í staðinn, afgreiðslustúlkan var ekki að fatta hvað konan var að biðja um enda Pólsk og var ekki alveg að skilja.
Viku áður í Krónunni var par með ungt barn á undan mér við kassann, maðurinn var að raða í pokana þegar konan rak augun í að hún fékk ekki 10% afslátt á einhverja vöru og eftir alltof langan tíma tókst að leiðrétta þessi hræðilegu mistök og fékk konan því endurgreiddar heilar 12 krónur, mér og manninum hennar til mikillar gleði.
Og að lokum þá var ég að koma frá því að fara með litla græna bílinn minn úr skoðun, ok mér var sagt að biðin væri 25-30 mín, samkvæmt númerakerfinu áttu að vera 5 bílar á undan mér, en svo alltaf inn á milli komu starfsmenn Frumherja úr með lykla í hönd og tóku bíla sem voru á planinu og ekki breittist númera kerfið við það...nei nei.
Á endanum fóru c.a. 12-15 bílar inn á undan mér, en það besta var að bíllinn sem átti að fara næst á undan mér inn var einmitt nýlegur Volvo og hann var svo fullkominn að drengurinn sem ætlaði að fara með hann inn gat ómögulega komið honum í gang.
Eftir smá stund gaf hann vinnufélaga sínum merki um að koma, hann kom en náði heldur ekki árangri með sænska undrið, á endanum voru komnir 4 Frumherjar að pæla í Vollanum en þeim fimmta ofbauð gaufið ítti á hnapp og...voila...mitt númer kom upp : )
Er þetta ekki bara samsæri?

Golfhringur #3
Hringur #3 var leikinn þann 20 maí á Kálfatjarnarvelli.
Við vorum tveir að þessu sinni ég og M2 og spiluðum við í fínu veðri, þó var völlurinn frekar blautur og hafði það áhrif sérstaklega á púttin.
M2 spilaði eins og vanalega betur en ég en þó bætti ég mig frá síðustu hörmung : )

21.5.08
Af hverju er ég að horfa á rusl bíómyndir?
Ég var að velta þessu fyrir mér, sannleikurinn er sá að ef teknar eru þær myndir sem ég hef horft á á þessu ári þá er meðal einkunn sem ég hef gefið þessum 26 myndum 5,5.

Það er ekki gott.
En hvað er málið?
Jú stór hluti af þessum myndum tilheyrir kvikmyndahátíð sem heitir Horrorfest, og þar sem ég er hryllilegur perri þá lagði ég það á mig að horfa á allar myndirnar sem voru á síðustu hátíð : / einkennilegt ekki satt?
Ég meira að segja ákvað að setja ekki inn á bloggið mitt umfjöllun eða trailer um nokkrar af þessum myndum einfaldlega vegna þess að ég var farinn að skammast mín fyrir að vera að eyða tíma í svona rusl : )
Ekki er vandamálið að ég hafi ekki úr nógu af "góðum" og "vönduðum" myndum að velja, ég bara.........stundum dettur maður niður á gullmola í þessu hryllings dóti en oftast dettur maður bara í skítahaug.
Nú set ég stefnuna á að horfa "nánast" eingöngu á "betri myndir" og get ég nefnt nokkrar sem eru næstar í röðinni, t.d. :
American Gangster 8,1 imdb
A History Of Violence 7,6 imdb
3:10 to Yuma 8,0 imdb
Eastern Promises 7,9 imdb
Into the Wild 8,3 imdb
The Lives of Others 8,5 imdb
El Orfanato 7,8 imdb
Þannig að það eru bjartir tímar framundan í bíómynda glápi, þó svo að eflaust detti inn á milli þessara gæða mynda eitthvað slakara, en ruslið er bannað : )

20.5.08
Ásdís Rán datt í lukku pottinn!
Tekið af visir.is

Þeir voru ekki af verri endanum gestirnir í partýinu sem Ásdís Rán fór í í Playboy setrinu á dögunum. Tilviðbótar við tvær kærustur Hughs Hefners og fjölda Playboy stúlkna mátti sjá glitta í fræg andlit.
Meðal þeirra sem Ásdís rakst á var leikarinn Ian Ziering, sem margir muna eftir sem Steve úr Beverly Hills 90210. „Ég hitti hann bara á spjalli, þetta var mjög fyndið því maður hefur ekki séð hann frá því í þáttunum," segir Ásdís, sem fannst Ian afar viðkunnalegur.
Þetta er aðal í viðtalinu: "maður hefur ekki séð hann frá því í þáttunum" NÁKVÆMLEGA!

Bíó: Hitman (2007)
Enn ein myndin sem gerð er eftir vinsælum tölvuleik.
Í þetta skiptið er það Agent 47 sem er aðal og er hann eins og nafnið á myndinni gefur til kynna leigumorðingi af hörðustu sort.
Einkunn 5/10
19.5.08
Bíó: Alien Vs. Predator Requiem (2007)
Rökrétt framhald af þessari mynd hlítur að vera Harry Potter Vs. Alien Vs. Predator : )
Sei sei já.
Einkunn 5/10
16.5.08
Golfhringur #2
Ég fór í golf í fyrradag ásamt M1 og M2 á Kálfatjarnarvöll í rjómablíðu og sól.
Meira hef ég ekki um það að segja, eða jú djöfull var bjórinn kaldur og góður!

9.5.08
Fyrsti golfhringur sumarsins að baki.
Ég fór ásamt M1 og M2 á Kálfatjarnarvöll í gær í frábæru veðri, völlurinn var fínn ef frá er talið eitt green sem er enn í vetrarham.
Spilamennskan var eins og við er að búast og eins og vanalega voru sem betur fer nægjanlega margir ljósir punktar til að halda áfram, púttin voru þó helsta gleðiefnið.
Takk drengir fyrir skemmtilegan eftirmiðdag, bara gaman.

8.5.08
Ný golfkerra, ekki meiri bakverkur : )

Sei sei já, ég skellti mér í Nevada Bob í hádeginu og verslaði svona kerru (silfraða) og vonast ég til að hún hjálpi mér heilmikið í golfinu í sumar, enda hef ég yfirleitt verið orðinn þreyttur í baki þegar líða fer á hringinn.
Flott kerra og áhyggjur mínar um að standpokinn minn yrði að vera á hlið í kerrunni reyndust ástæðulausar þar sem hann smellpassar í græuna.
Hún verður tekin til kostana í dag.
7.5.08
Hummm........
Af hverju hefur ekkert heyrst í fréttum, í allri þessari umræðu um að sérann á Selfossi sé barnaperri, að viku áður en hann var kærður voru honum veitt sérstök verðlaun af Selfossbæ fyrir framúrskarandi starf í þágu barnastarfs þar í bæ?
Guð mun örugglega fyrirgefa honum hafi hann brotið á börnunum.

6.5.08
Bíó: Spider-Man 3 (2007)
Þriðja myndin um Lóa og óvini hans.
Flottar brellur en frekar þunnt stuff og svo er Kirsten Dunst alveg óþolandi leikkona.
Alltof löng, 139 min
Einkunn: 6/10
5.5.08
Bíó: Transformers (2007)
Þessi mynd er gerð eftir vinsælum teiknimyndasögum, sumir fíla svoleiðis, aðrir ekki.
Fyrir þá sem hafa ímyndunarafl fyrir svona myndir þá er þessi bara fín.
Einkunn: 7/10
4.5.08
3.5.08
Bíó: Futurama: Bender's Big Score (2007)
Fyrsta bíómyndin sem er gerð eftir þessum vinsælu sjónvarpsþáttum sem snillingarnir hjá Fox stoppuðu eftir 5 vinsæl síson.
Fyrir þá sem höfðu gaman af þáttunum á sínum tíma (voru sýndir hjá Rúv) þá er þessi mynd afar velkomin.
Þess má geta að það er verið að gera a.m.k. tvær aðrar bíómyndir um Fry og félaga.
Fínasta skemmtun.
Einkunn: 7/10
2.5.08
Föstudagsfílingurinn!
Fílingurinn að þessu sinni er með Klaxons og heitir lagið It's Not Over Yet.
Lagið er cover af lagi Grace, sem náði miklum vinsældum á dansgólfum árið 1995.
Hér er orginallinn.

Bílafloti nokkura fótbolta kappa
1.5.08
Chelsea 3 - Liverpool 2
Hörku leikur, fullur af drama eins og vanalega.
Til lukku Chelsea með sigurinn og þá er það "heimaleikur" gegn Man Utd í Moskvu 21 Maí.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)