8.4.08

Spaugstofan ekki meir?

Samkvæmt lítilli klausu í Fréttablaðinu í dag ku spaugstofumenn vera orðnir uggandi yfir því að ekki hafi enn verið gengið til samninga við þá um þáttagerð fyrir næsta vetur, en þeir semja víst alltaf til eins árs í einu.
Tafirnar eru víst til komnar vegna Þórhalls Gunnarssonar dagskrárstjóra en hann er víst að skoða málin.
Það er ljóst að áhorf á þætti þessara steingeldu hasbinnara hefur dalað þó nokkuð undanfarið en þó er spurning hvort ekki sé ástæða til að semja við þá um áframhaldandi "glens" bara fyrir talsvert lægri laun, það eru jú enn nokkur gamalmenni og svo auðvitað húmorslausir sem hafa gaman af Spaugstofunni.
Annars vonar maður bara að augljós metnaður Þórhalls nái til framleiðslu nýs og fersks gríns á laugardagskvöldum.
Ég lifi í voninni..........

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eftir tvö ár verða veðurfregnirnar eina innlenda dagskrárefnið í boði á Ruv :-/

kv. R.Giggs

M4 sagði...

Hvaða hvaða Hr. Giggs, maður gæti haldið að þú sért aðdáandi : )

Nafnlaus sagði...

M4! Þetta var illa sagt! >:(



M2

Nafnlaus sagði...

Einlægur aðdáandi ;-)
R.Giggs