Í dag er ég veikur, með hita og hor.
Er það ekki akkúrat ég að veikjast þegar mikið stendur til?
Ég á fullt af góðum pillum síðan úr Vegas ferðalaginu sem ættu að geta hjálpað mér til þess að mæta í brúðkaup Bjarna og Kristínar á morgun, ég skal!
Annars fannst mér stjörnuspá nautsins á mbl.is í dag algerlega viðeigandi:
"Hvað sem kemur í veg fyrir áætlaðar skemmtanir er ekki nógu gott. Reddaðu því á svipstundu. Það eina sem er einhvers virði er ánægjuleg reynsla þín."
3 ummæli:
Þú misstir af brúðkaupi aldarinnar, snilld frá A-Z
Jamm, svekkelsi okkar skötuhjúa er endalaust yfir þessu : (
P.s
ég sætti mig við að aðili kvitti fyrir sig sem R. Giggs en ekkert kvitt er bannað : )
Ég komst ekki heldur :-(
kv. R.Giggs
Skrifa ummæli