10.4.08

Munaði litlu.

Ég verð að deila þessu með ykkur.
Í gærmorgun varð slys á Reykjanesbrautinni á vegakaflanum á milli Voga og Grindavíkur, ekki fyrsta slysið síðan að verktakarnir fóru á hausinn og skildu eftir sig ófrágengið verk.
Ég nefnilega rétt slapp við að verða valdur að slysi á þessum sama kafla á Föstudaginn langa.
Við fjölskyldan skelltum okkur í heimsókn til Grindavíkur og seinni partinn lögðum við af stað heim á leið, svo þegar út á þennan umrædda vegakafla var komið og ég búinn að keyra smá stund blasti við mér tvöfaldur vegur hinumegin við mig (að vísu var þar engin umferð sjáanleg, ekki það að ég hafi verið að pæla í því) og því var ég viss um að við værum kominn á tvöfaldaðan kafla enda sá ég ekkert sem benti til annars.
Eftir að hafa verið á vinstri vegahelming í nokkrar sekúndur og tekið fram úr c.a. 2 bílum þá spyr konan mig hvort ég sé brjálaður, ég var ekki að fatta hvað hún var að meina með þessu enda var umferðin fyrir framan mig frekar hæg.
Svo er mér litið lengra fram á veginn og sé ég að það nálgast okkur bílalest beint á móti!
Djöfull hvað mér brá og náði ég að troða mér fram fyrir næsta bíl rétt svo til að forðast árekstur.
Ég get varla ímyndað mér hvurslag slys hefði þarna orðið því fyrir aftan mig voru bæði 3 mótor hjól og svo auðvitað bílar lika, og á móti voru svo nokkrir bílar í röð lika.
Ég hef örugglega aldrei verið eins nálægt því að drepa mig og hvað þá mína nánustu líka, svo ég tali nú ekki um hina bílstjórana sem voru að gera allt rétt.

Ef ég væri trúaður maður (sem ég er ekki) þá væri ég alveg viss um að ef konan hefði ekki spurt mig hvort ég væri brjálaður þá hefði þetta stutta ferðalag komist í fréttirnar : )

Engin ummæli: