Liverpool var enn einu sinni miklu betra liðið í viðureign sinni við Chelsea og það gefur manni góða von fyrir seinni leikinn.
Rosalega vona ég að Drogba fari burt úr úrvalsdeildinni í sumar, hann er algerlega óþoladi, leikaraskapurinn og tuðar útaf öllu.
Ekki skil á hvaða lyfjum dómarinn var í kvöld því hann var gersamlega blindur á fantaskap leikmanna eins og Terry (þurfti að klofa yfir liggjandi Torres og lét sig síga til að reka hnéð í síðuna á honum) og af hverju Ferreira fékk ekki spjald í leiknum er mér alveg fyrirmunað að skilja.
Liverpool spilaði fannst mér fanta fínan fótbolta í kvöld og ef ekki hefði verið fyrir að Riise þurfti að kóróna ömurlegt tímabil þá hefði mjög verðskuldaður 1-0 sigur verið í höfn.
En af hverju….af hverju þurfum við alltaf að fara erfiðu leiðina?
Ég er ekki að grínast, ég er búinn að fá nóg af þessu” drullast áfram á kraftaverki” hjá Liverpool!
Við áttum að vinna þennan leik 3-0!
AAAARRHHHHHHHHHHHHHHHHHH!

He he he, varð að láta þessa mynd af þjálfurunum fylgja : )
Hvað er Avram Grant?
Það er nú oft talað um að Rafa sé rólegur á bekknum, en þessi...þetta....hvað sem þetta er....shiiiiit!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli