5.4.08

Jokur

það var einu sinni kona sem átti þrjár dætur.
Í hvert skipti sem einhver af dætrum hennar gifti sig bað mamman þá
dótturina sem var að gifta sig í það skiptið, að vera fljóta að skrifa
heim eftir að hún fluttist að heiman og segja gömlu konunni hvernig
kynlífið væri hjá hinni nýgiftu.

Jæja sú elsta gifti sig fyrst og aðeins tveimur dögum seinna barst
gömlu konunni bréfið frá dóttur sinni.
Á því stóð aðeins “Myllukökur Myllubrauð”.
Gamla konan átti bágt með að skilja þetta en fyrir einhverja rælni tók
hún eftir auglýsingu frá Myllunni þegar hún vað að blaða í Dagblaðinu
síðar um kvöldið.
En þar stóð “Myllukökur Myllubrauð…… ávallt seðjandi”.
Gamla konan sá nú að hún þyrfti engar áhyggjur að hafa að elstu dóttur
sinni, henni væri vel sinnt.

En þar kom að miðdóttirin gifti sig og leið vika frá brúðkaupinu þar
til gömlu konunni barst bréfið frá dóttur sinni.
Þar stóð aðeins “Ingvar og Gylfi”. Kella var nú fljót að leita að
Dagblöðunum og fann að lokum auglýsingu frá Ingvar og Gylfa þar sem
stóð “Nýi rúmgaflinn frá okkur…… King size og extra langur”.
Vissi nú kella að hún þyrfti heldur engar áhyggjur af hafa af þessari
dóttur sinni.

Jæja bréfið frá yngstu dótturinni var lengi á leiðinni en barst loks
kellu fjórum vikum eftir brúðkaupið.
Í bréfinu stóð aðeins eitt orð “Flugleiðir”.
Kella leitaði nú ákaft að auglýsingu frá Flugleiðum í Dagblaðinu og á
endanum fann hún eina.
En eftir að hafa lesið auglýsinguna leið yfir kerlinguna því þar stóð:
“Þrisvar á dag, sjö daga vikunnar, á alla áfangastaði!!!!!!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

úúúhhúú.... aftan og framan og allt um kring !
kv. R.Giggs