30.4.08

Chelsea vs Liverpool

Jæja, þá er komið að seinni leik minna manna og Chelsea í undanúrslitum meistaradeildarinnar en fyrri leikurinn fór 1-1 sælla minninga : ) þar sem hinn rosalega einfætti Riise áhvað að leggjast í jörðina og skalla bolta sem var 20 cm frá jörðu frekar en að nota hægri fótinn sem hann getur varla staðið í, og jafnaði þannig fyrir Chelsea í lok viðbótartíma.
Mín tilfinning fyrir þennan leik er ekki góð og svo dreymdi mig tap líka, ég held að Chelsea vinni leikinn í kvöld og mæti í Moskvu Man Utd sem fóru verðskuldað áfram úr viðureign sinni við hugmyndasnautt lið Barcelona í gær.

Þannig er nú það.

Engin ummæli: